Hátt er oft fallið af stalli. Þegar þetta er skrifað, rúmum fjórum mánuðum eftir að kórónaveirunnar varð fyrst vart, hafa Bandaríkjamenn alls skimað 4,9 milljónir íbúa fyrir þeim fjanda. Það rétt rúmlega EITT OG HÁLFT prósent þjóðarinnar.

Kaninn eftirbátur næstum allra annarra þjóða heims að skima fyrir kórónavírusnum. Sem þýðir líklega að fjöldi sýktra er margfalt hærri en gefið er til kynna.
Framundan vestanhafs er þvílík óöld að slíkt hefur ekki sést í manna minnum.
Ekki aðeins er landið á pari við Nýju-Gíneu að skima fyrir einhverjum hættulegasta vírus sem vitað er um heldur er einkarekið heilbrigðiskerfi landsins þannig að tugmilljónir íbúa munu aldrei hafa efni á skimun og gætu því smitað frá sér næstu mánuðina og jafnvel árin. Það í ofanálag við að tæplega 90 milljónir landsmanna eru ekki í tryggingakerfinu og fá því enga skimun yfirhöfuð. Kórónavírusinn gæti því leikið þokkalega lausum hala vestanhafs næstu árin með tilheyrandi mannfalli fyrir fátæka.
Það aftur þýðir að hver sá sem ætlar í sólbað í villunni sinni á Flórída (lesist Bjarni Benediktsson) næstu misserin er að setja sig og sína í stórhættu ef fæti er brugðið út fyrir lóðamörk. Sökum þess að fólk sem ekki er með heilbrigðistryggingu eða aðgang að heilbrigðisþjónustu (eins og vörðurinn á flestum lokuðum íbúðasvæðum Flórída) mæta til vinnu hvað sem tautar og raular. Hiti og hóstaköst eru nefninlega þar ekki ávísun á slak heimavið heldur þvert á móti; ef þú mætir ekki í vinnuna færðu ekkert borgað. Og þegar hver frídagur frá vinnu er launalaus og enginn matur er í skápnum er hætt við að Nonni Veiki mæti til vinnu hvernig sem staðan er.
Þetta er að sama skapi ástæðan fyrir því að íslensk stjórnvöld ættu að loka landinu fyrir bandarískum ferðamönnum næstu tvö, þrjú árin. Í öllu falli fara fram á skimum allra bandarískra þegna á leið til Íslands til ársins 2023. Ef einhver er með hita eða hósta verður sá hinn sami að fljúga annað eða drekka líter af sótthreinsivökva áður en haldið er af stað. Sé viðkomandi enn á lífi þegar lent er í Keflavík er líklega óhætt að leyfa viðkomandi að hósta úr sér lungun á hótel Adam við Skólavörðustíg í tvær vikur eða svo.







