Þið ykkar sem sáuð fyrir ykkur paradísarheimt í ferðum og flugi þegar náðst hefur að hemja kórónaskepnuna þurfið að hugsa málið aðeins upp á nýtt. Íslenska krónan er með þvílíkan niðurgang að allar ferðir erlendis næstu misserin verða að lágmarki 15% dýrari en verið hefur undanfarin ár og voru þó dýrar fyrir.

Litla krónan má síns einskis gagnvart erlendum gjaldmiðlum þegar eitthvað bjátar á á farsæla Fróni.
Til að setja hlutina í samhengi er ráð að skoða litlu krónuna í samanburði við evru svona sirka fimmtán mánuði aftur í tímann. Gróft meðalgengi á þeim tíma, fram til marsmánaðar, hefur verið þetta 134- 140 krónur fyrir eina evru. Ekkert frábært en allavega í sæmilegu jafnvægi. Nú, aftur á móti, fæst ekki ein evra undir 156 krónum.
Sama gildir um dollarinn altumlykjandi. Allt síðasta ár fékkst skitinn bandarískur dollar fyrir þetta 120-126 krónur giv or teik. Núna kostar nákvæmlegi sami dollar 143 íslenskar krónur. Það, gott fólk, er 20 prósenta hækkun!!!
Sem merkir á mannamáli að Flórída, Boston og New York eru skyndilega orðin FOKDÝR svæði fyrir krónueigendur. Svæðin þrjú alltaf verið þokkalega dýr per se en þó hægt að gera vænleg kaup inn á milli. Ekki lengur ef fram heldur sem horfir og ekkert bendir til annars en niðurgangurinn haldi áfram.
Hér að ofan er miðað við almennt seðlagengi en ekki halda eitt augnablik að þú, plebbi og plebbína, njótið þeirra kjara. Ekki aldeilis. Ofan á þessar tölur óhætt að henda 5-10 prósentum aukalega fyrir bankann. Það kostar jú fjölda starfa að panta erlendan gjaldeyri frá Seðlabankanum svo ekki sé talað um að manneskja af holdi og blóði afgreiði klabbið.
Kannski óvitlaust fyrir þau ykkar sem sjáið draumaferðina í hillingum og það eigi síðar en með haustinu eða næsta vetur að henda nokkur hundruð þúsund köllum í gjaldeyriskaup nú þegar. Ólíklegt að krónudruslan nái sér neitt á strik næstu misseri og jafnvel ár. Seðlabankinn þarf jú að liðka fyrir útflutningi Samherja og Alcoa á kostnað okkar allra.







