Jú, víst lækkaði forstjórinn laun sín úr fjórum millum í þrjár millur svona rétt á meðan hann sagði upp 240 starfsmönnum. En hann hefði mátt lækka laun sín oggupons meira svona til að viðskiptavinir gætu fengið einhverja aðstoð áður en árið er liðið.

Býsna margir á samfélagsmiðlum kunna Icelandair engar þakkir fyrir þjónustu. Mynd Icelandair

Ekkert lítið sem hraunað er yfir Icelandair á samfélagsmiðlum. Ekki furða enda flugfélagið ekki yrt á nokkurn mann á þeim vettvangi síðan 18. mars. Flugfélagið er meira að segja búið að tryggja sér ókeypis þjónustu utanríkisráðuneytisins til að birta upplýsingar um flugáætlun félagsins.

Aðal vandamál viðskiptavina Icelandair, fyrir utan að fá engin svör eða samband, virðist vera að fyrirtækið er alls ekki að endurgreiða flugmiða vegna ferða sem falla niður. Þær upplýsingar fá þó aðeins fjórir af hverjum hundrað því fleiri virðast ekki ná sambandi við flugfélagið af einhverjum orsökum. Fyrirtækið svarar alls engum á samfélagsmiðlum og jafnvel þeir sem ná í gegn símleiðis lenda gjarnan í þessu; tveggja stunda bið í símanum og svo bara skellt á liðið. Það virðist því við fyrstu sýn að af þeim 240 sem fyrirtækið lét fara í vikunni séu sirka 240 í þjónustudeildinni.

Trixið hér virðist vera það að sleppa við endurgreiðslu fargjalda og eða hugsanlegra bóta með því að láta fólk ekki ná í sig. Því ef ferðalangar ná ekki sambandi við flugfélagið áður en ferð er hafin fellur bótarétturinn niður.

Auðvitað ætti Samgöngustofu að hefja rannsókn á þessu hið snarasta en þar fá flestir greitt fyrir að bora í nefið og okkur vitandi hefur stofnunin aldrei hafið rannsókn á einu né neinu. Þar hjálpar auðvitað að yfirmaður þeirra stofnunar er Siguður Ingi -einhvers-staðar-verður-að-geyma-peningana Jóhannsson.

Auðvitað skiptir ekkert af þessu máli svosem. Fjármálaráðherrann sjálfur, Bjarni Benediktsson, gefið opinberlega út að Icelandair muni aldrei falla á hans ríkisvakt. Sem er hreint makalaus yfirlýsing út af fyrir sig um einkafyrirtæki á markaði. En aldeilis kjörið tækifæri fyrir stjórnendur flugfélagsins að eyða fleiri milljörðum í kaup á eigin bréfum eða snarhækka bónusana svona fyrst plebbarnir í landinu eru í ábyrgð fyrir öllu klabbinu.