Súrt er það en staðreynd samt: íslenska krónan að gefa eftir svo um munar gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum. Sem þýðir að ferðalög í næstu framtíðinni verða töluvert kostnaðarsamari en þú kannski gerir ráð fyrir.

Dollarinn ekki verið hærri gagnvart krónunni í áratug
Ekki svo að skilja að ferðalög séu mikið á dagskrá almennings þessa stundina en það kemur að því að það liðkast um í heimskerfinu og flakk fýsilegt á nýjan leik. Og þá duga peningarnir mun skemur.
Sem dæmi má nefna að bandarískur dollar kostar nú 17% meira en sami dollar gerði um síðustu áramót, 44% meira en fyrir sléttum tveimur árum síðan og reyndar hefur stakur dollari ekki kostað svona mikið um TÍU ÁRA SKEIÐ hið minnsta eins og sjá má á meðfylgjandi töflu:

Hér er líka miðað við almennt seðlagengi en óhætt að bæta 10 til 15 prósentum ofan á þessa tölu ef þú ert að kaupa dollar í banka. Svipað fall hefur orðið gagnvart evru og pundi síðustu vikurnar. Ein evra kostar nú rúmlega 150 krónur og eitt pund tæplega 170 krónur.
Afar jákvætt fyrir útflutningsgreinarnar okkar og ferðaþjónustuna en öllu verra fyrir þorra almennings. Vöruverð mun hækka umtalsvert fljótlega og auðvitað verða öll ferðalög, þegar að því kemur, þess dýrari líka.







