Þrátt fyrir að stór partur norðurhluta Ítalíu sé áhættusvæði hvað viðkemur kórónafaraldrinum sá forstjóri Vitaferða, dótturfyrirtækis Icelandair, enga ástæðu til að fella niður skíðaferð á svæðið þennan daginn. Guð hjálpi ferðaskrifstofunni atarna ef einhver sýkist.

Borgin Veróna á Ítalíu er á mörkum þess svæðis sem er lokað og læst vegna kórónafaraldursins.
Það er lumma dagsins sem fyrr hjá Icelandair: peningar í buddu trompa öryggi og velferð.
Við sáum það skýrt og greinilega þegar forstjóri Icelandair beið skilaboða frá Boeing eftir að tvær Boeing Max vélar hröpuðu til jarðar með litlu millibili hér fyrir ári síðan með hörmulegum afleiðingum fyrir hundruðir. Icelandair eitt af allra síðustu flugfélögum heims til að jarðsetja þær vélarnar.
Nú lýsir forstjóri Vitaferða algjöru frati á viðvaranir og sendir tonn af fólki til Veróna á Ítalíu. Það þrátt fyrir að minnst tveir einstaklingar sem voru að koma frá Veróna séu nú í sóttkví!!!
„Þráinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri VITA-ferða, segir í samtali við fréttastofu að ekki séu forsendur til að fella niður flugið til Verona á morgun. Skíðasvæðið sé utan skilgreinds áhættusvæðis og áhættumatið sé því óbreytt.”
Það var og.
Jú, víst eru skíðasvæði Dólómítafjalla ekki formlega á hættusvæði vegna faraldursins. En borgin Veróna og þar með flugvöllur borgarinnar er það. Þá eru skíðasvæðin alveg á nippinu að teljast til hættusvæða. Vita er að taka hér feitan séns.
Ef svo illa fer að einhver eða einhverjir Íslendingar koma heim úr skíðaferðinni góðu með bullandi hita, mögulega sýktir af kórónavírus, og þurfa að dvelja undir tjaldi í einangrun á mygluðum Landspítalanum lon og don, eru Vitaferðir í snörunni. Það er varla nokkur þeirra að fara að sætta sig við nokkra þúsundkalla í bætur undir borðið frá Vita. Það er lögfræðingur og milljóna króna krafa hið minnsta. Tugmilljónir króna ef viðkomandi deyr drottni sínum.
Vita að leika sér að eldinum eins og móðurfyrirtækið. Og stundum brennir undan…







