Frá og með deginum í dag er öllu ódýrara að ferðast um smáríkið Lúxemborg. Allar samgöngur innanlands eru nú fríar 🙂

Baráttan gegn mengun/hlýnun jarðar tók flott stökk þennan daginn. Skjáskot
Stórt skref stigið í baráttunni gegn mengun/hlýnun jarðar þennan daginn þegar smáríkið Lúxemborg varð fyrst ríkja heims til að gera almenningssamgöngur 100% ókeypis. Nú geta bæði heimamenn og ferðamenn þvælst um landið með strætó, sporvögnum eða lestum og greitt svo mikið sem 0 krónur fyrir.
Vissulega ódýrara fyrir stjórnvöld í Lúxemborg að bjóða fríar almenningssamgöngur en mörg önnur ríki sökum smæðar landsins. Engu að síður risaskref til grænni framtíðar og mjög til eftirbreytni.
Þetta þýðir auðvitað líka fyrir ferðaþyrsta sem vilja skoða þetta smáríki að þeir spara nokkurn skilding ef flakka skal um. Það extra stór plús í ríki sem er tiltölulega dýrt heimsóknar svona heilt yfir.







