Eins dauði alltaf annars brauð. Að þessu sinni þeirra Íslendinga sem sjá Indónesíu og stórkostlegur eyjur þess lands í hillingum.

Balí líklega einn frægasti sólarstaður heims ásamt Flórída og Costa del Sol.

Kórónavírusfaraldurinn í Kína hefur sett stórt strik í ferðalög milljóna Kínverja og margra annarra að auki. Kínverjum er nú beinlínis meinað að heimsækja Indónesíu og nokkur önnur lönd í Asíu meðan faraldurinn geysar og fátt bendir til að hann sé mikið í rénun þegar þetta er skrifað.

Indónesía hreint ekki eina landið sem hefur sett blátt bann við öllum ferðum frá Kína til landsins en líklega eina landið sem hefur þegar gripið til aðgerða til að bannið slátri ekki ferðaþjónustu landsins á fimm mínútum sléttum. Það eru jú aðeins tæpar tvær milljónir Kínverja sem heimsækja Indónesíu árlega og það munar um minna þegar sá fjöldi er skyndilega útilokaður.

Stjórnvöld í landinu hafa því gripið til þess ráðs, tímabundið, að lækka skatta og skyldur fyrir ferðafólk um allt að 30 prósent. Það merkir að allt flug til landsins og frá er enn ódýrara, það merkir að bílaleigubílar eða skellinöðrur er ódýrara að leigja og ríkisgjöld á gistingu, mat og afþreyingu lækkar enn frekar en venja er.

Sé haft hugfast að þessir hlutir kosta yfirleitt hreint engin ósköp dags daglega er óhætt að slá föstu að sé löngun til að sækja Indónesíu heim mun það seint eða aldrei vera ódýrara en næstu vikur og mánuði. Afsláttakjör stjórnvalda nú þegar tekið gildi hvað gististaði varðar og sjálfsagt að skoða hvað í boði er á hótelbókunarvef okkar hér að neðan. 🙂