Það er ekkert lítilvægt að lenda í flugslysi. Það jafnvel þó allt fari á besta hugsanlega veg eins og gerðist í dag þegar rella Icelandair kyssti steypuna á Keflavíkurflugvelli við lendingu. En eiga farþegarnir hugsanlega einhverjar bótakröfur á flugfélagið vegna slyssins?

Bætur vegna flugslyss? Ekki alveg fráleitt. Skjáskot RÚV

Það kann að hljóma kjánalega að velta slíku fyrir sér fimm mínútum eftir slysið en það er ástæða til að farþegar ættu að hafa slíkt bak eyra. Það er nefninlega ekki alveg útilokað að slysið sé vegna slælegra vinnubragða starfsmanna Icelandair.

Rellan sem um ræðir er tuttugu ára gömul og því í yngri kantinum miðað við vélar Icelandair. Engu að síður vél sem þarf mikið viðhald og það oft. Flugfélagið hefur verið að spara töluvert undanfarin misseri og kannski, kannski var eftirlit skorið við nögl enda kostar það peninga eins og annað.

Í öllu falli er forstjórinn „on record“ að segja fráleitt að aldur vélarinnar hafi eitthvað um lélegan hjólabúnað að gera. Sé það rétt er ekki útilokað að einhverjir flugvirkjar hafi gert mistök við síðustu skoðun og ef það er rétt eiga farþegar 100 prósent skaðabætur inni hjá flugfélaginu.

Því miður er fjármagn til Rannsóknarnefndar flugslysa skorið við nögl á einhentum dverg og því tekur það þá stofnun sirka tíu ár að komast að niðurstöðu um eitt eða neitt. En að því gefnu að mál séu ekki fyrnd þegar niðurstaða fæst er ekki fráleitt að einhverjar bætur verði greiddar. Það er að segja ef sannað þykir að viðhaldi hafi verið ábótavant.