Einhvern veginn ímyndar maður sér að svokölluð lággjaldaflugfélög bjóði ávallt og alltaf upp á lág og hagkvæm fargjöld. Það tóm della.

Fengum nett fyrir hjörtun hér hjá Fararheill við tékk á fargjöldum Wizz Air til Vínar og Kraká í sumar. Við vön því að finna fargjöld fram og aftur kringum 30 þúsund eða svo án farangurs og ekki síst fimm til sex mánuði fram í tímann.

Alas, ekki svo gott. Það má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskotum af vef Wizz Air.

Örstutt helgarferð til Kraká í Póllandi kostar svo mikið sem SEXTÍU OG TVÖ ÞÚSUND KRÓNUR á haus á ódýrasta farrými með ekkert meðferðis!!! Helmingi hærra verð fyrir pakkann en eðlilegt er ef þú spyrð okkur. Ef það er ekki í órafjarlægð frá lágum fargjöldum skulum við hér hundar heita og éta hatta okkar í þokkabót. Detti þér til hugar að taka töskudruslu með hækkar verðið umsvifalaust í 70 þúsund.

En bíddu við, þetta versnar.

Vikutúr til Vínarborgar í Austurríki í byrjun júní kostar manninn að lágmarki SJÖTÍU ÞÚSUND KRÓNUR!!!  Hver þremill er í gangi hjá Wizz Air annað en tær græðgi? Flug fimm mánuði fram í tímann á sardínufarrými með EKKERT meðferðis kostar það sama og túr með Icelandair til Flórída og heim aftur. Taktu með tösku hér og átta stunda flugið í níðþröngu farrými á sparneytnustu vélum heims kostar 80 þúsund krónur.

Allt rosa eðlilegt við það (ekki.)