Svo Icelandair hefur lengi verið í fararbroddi flugfélaga hvað mengun og kolefnisútblástur ræðir. Einmitt Romney.

Icelandair montar sig af því að hafa tekið stór skref til að minnka eldsneytisnotkun og þar af leiðandi mengun og viðbjóð. Yfirlýsing sem meikar ekkert sens…
Iceland Naturally er „ferðavefur” sem er rekinn af nokkrum hagsmunaaðilum og þar á meðal Icelandair sjálfu. Þar má finna aldeilis merkilega grein um hve Icelandair er nú að gera sitt til að vinna mót mengun í veröldinni eins og lesa má um hér.
Í greininni, sem ætluð er erlendu ferðafólki er bent á að Icelandair hafi nú aldeilis tekið til í ranni og þar á meðal með þessu:
„Icelandair has long been recognized for its sustainable efforts, including introducing a new line of in-flight biodegradable cutlery and eco-friendly amenities kits.”![]()
Við þessa þvælu er ýmislegt að athuga. Í fyrsta lagi er Icelandair ekki þekkt fyrir að vera í fararbroddi í einu né neinu og alls ekki fyrir mengunarvarnir. Í öðru lagi hefur það ekki nein meiriháttar áhrif að bjóða upp á endurvinnanleg hnífapör í stað hnífapara úr ódýrasta plastinu. Eða hversu margir eru að kaupa sér mat í vélum Icelandair? Líklega engir svo það markmið er hjóm út í eitt. Eco-friendly amenities er enska yfir dúllerí sem farþegar í Saga Class fá gefins þegar sest er í sæti. Yfirleitt eitthvað tómt drasl frá þekktu vörumerki. Að það draslið sé vottað sem umhverfisvænt þýðir ekki að Icelandair sé í fararbroddi í umhverfisvernd. Þvert á móti.
Hvergi kemur fram í grein Iceland Naturally að Icelandair er að reka einn elsta flugflota í vestrænum heimi og þótt víðar sé leitað. MEÐALALDUR flugvéla Icelandair er 22 ÁR. Tónlistarmyndbandið hér að ofan var eitt það vinsælasta þegar vélar Icelandair voru framleiddar. Ekki nokkur sála var að spekúlera í mengun þegar vélarfloti Icelandair var smíðaður. Vélar Icelandair menga 30-50 prósent meira en nýjustu vélar Airbus svo dæmi sé tekið.
Icelandair ætti kannski að takmarka fjárframlög til bullmiðla og safna nægu fjármagni til að kaupa sparneytnar vélar svo fyrirtækið geti raunverulega státað sig af mengunarvörnum. Allt annað er tóm lýgi!







