Skjótt skipast veður. Fyrir ekki svö löngu síðan var hægt að velja um ÞRJÚ flugfélög til að komast lóðbeint héðan til Moskvu í Rússlandi. Það því miður ekki mögulegt lengur en það þýðir ekki að þú ættir ekki að gera þér ferð á þessar slóðirnar.

Ekki allra þessi en fáum leiðist eitt augnablik
Moskva! Klárlega ekki allra að heimsækja. Líkurnar að finna Brynjar Níelsson í Moskvu svipaðar og finna Katrínu Jakobs í spilavítum Las Vegas. Nema hvað það fólk lætur strauma í pólitík hafa áhrif á hvert það fer og hvers það nýtur. Við hin vitum betur.
Moskva er heimsborg hvað sem tautar og raular og svo stór og mikil að hér má auðveldlega eyða mánuðum saman og samt ekki komast yfir allt það helsta sem hér er merkilegt.
Almennt eru Rússarnir þokkalega vingjarnlegir gagnvart Íslendingum. Hvergi fáum við kúk og kanil í Moskvu en heimamenn eru heldur ekki almennt að sýna lit dags daglega. Rússinn er heilt yfir svipað sífreðinn og túndrurnar í Síberíu og hamra þarf nokkur högg í ísinn hjá hverjum og einum til að fá fram svipbrigði. En ef þú nærð því ertu í góðum málum. Þá færðu boð í partí á nóinu.
Við erum að setja saman príma ferðaleiðsögn um Moskvu en þangað til er alls óhætt að skoða þetta flotta myndband hér að neðan 🙂







