I celandair er með þetta. British Airways er með þetta. Turkish Airlines er með þetta. Emirates er með þetta. Air France, Lufthansa og American Airlines líka. Allar flugvélar þessara fyrirtækja eru mestmegnis hvítar á lit. Fyrir því eru nokkrar skrambi góðar ástæður.

Rauður er litur áhættu og elskenda en litavalið arfa vitlaust fyrir flugfélag.
Við nefnum þetta nú sökum þess að brátt líður að því að íslenska lággjaldaflugfélagið Play hefji starfsemi.
Vonandi gengur það dæmi allt upp enda við klakabúar þurft að búa við talsverða hækkun á flugfargjöldum síðan Wow Air var og hét. Enginn lengur að skottast fram og aftur til Kanarí fyrir 30 þúsund krónur eins og oft var í boði hjá Wow Air.
En líkt og önnur lággjaldaflugfélög ætla forsvarsmenn Play að gera feit mistök. Ef marka má kynningar forráðamanna verða rellur Play allar meira og minna eldrauðar á litinn.
Litavalið mun vitaskuld vekja athygli á flugvöllum heimsins og kann mögulega að trekkja einhver viðskipti aukalega til Play. En liturinn er fáránlegur fyrir lággjaldaflugfélag eins og reyndar allir aðrir litir en hvítur. Fyrir því eru nokkrar ástæður:

Ljós litur á rellum er betri kostur í nánast öllum tilvikum.
A) Heilmálaður þotuskrokkur bætir allt að HÁLFU TONNI við þyngd rellunnar. Aukin þyngd krefst aukins eldsneytis og auðvitað meiri kostnaðar fyrir flugfélagið auk þess sem aukið eldsneyti merkir meiri mengun. Öll þurfum við á meiri mengun að halda. Með tilliti til að við þurfum að punga duglega út fyrir hvert gramm umfram heimildir í flugi skýtur skökku við að lággjaldaflugfélag sem leitar allra leiða til að ná samkeppnisforskoti heilmáli rellur sínar.
B) Dökkir litir draga í sig hita frá sólinni meðan hvítir hrinda frá sér hita frá sólinni. Þetta getur skipt sköpum í 40 þúsund feta hæð bæði varðandi hugsanlegar skemmdir á rellunni vegna hita en ekki síður sökum þess að sólin gefur frá sér útfjólubláa geisla. Sannað þykir að útfjólubláir geislar eru krabbameinsvaldandi og slíkir geislar ná lengra inn í dökka þotu en hvíta.
C) Litir fölna með tímanum og ekki hvað síst þegar flogið er hátt í himinhvolfinu tvisvar, þrisvar á dag. Það aftur þýðir að mála verðu relluna mun oftar en ella. Það kostar fúlgur fjár í hvert sinn. Fúlgur fjár sem engir aðrir en viðskiptavinir flugfélagsins þurfa að borga með hærri fargjöldum en ella.
D) Fyrir hverja flugferð verða flugmenn að kanna skrokk véla og ganga úr skugga um að engar skemmdir séu á skrokknum sem sett geti vélina í hættu á flugi. En það er töluvert erfiðara að koma auga á hugsanlega skemmd á eldrauðri vél en hvítri.
E) Fátt er hættulegra flugvélum og farþegum þeirra en fuglar á flugi. Sogist þeir í hreyfla véla er voðinn vís og dæmin um slíkt skipta hundruðum. Fuglar sjá fleiri liti en við mannfólkið en þeir ruglast líka auðveldar á ljósi og skugga samkvæmt rannsóknum. Þeir sjá því verr dökklitaða flugvél en ljósa og sérstaklega ef ský eða bakgrunnur er dökkur líka. Ljós litur getur því beinlínis bjargað mannslífum umfram dekkri liti.
Um að gera samt að vekja athygli með eldrauðum lit að mati fræðinga Play…
– BS







