Flest þurfum við upplyftingu reglulega enda lífið töluvert flókið og erfitt fyrir okkur flest sem ekki erum hluti af Engeyjarættinni. Sama liði og þarf aðeins að greiða klink í skatta fyrir milljarða sína. Þá er fátt betra en gleyma viðbjóðnum, kveðja ófarsæla Frón stundarkorn og það fyrir klink og kanil 🙂

Fimm stjörnu menning, söfn á heimsmælikvarða og svo eru heimamenn ekkert sérstaklega leiðinlegir heldur…
Óvíst hversu margir gera sér grein fyrir að ungverska flugfélagið Wizz Air er með alla anga úti hérlendis. Flugfélagið er reglulega að bæta við leiðakerfi sitt héðan og einn súperpríma staður sem er inni í þeim pakka á næstunni er beint flug til Vínarborgar.
Hvernig hljómar skottúr um helgi til Vínar fram og aftur á súpertíma fyrir svo mikið sem TUTTUGU ÞÚSUND KRÓNUR!
Það fargjald finnst næsta auðveldlega á næstu vikum á vef Wizz Air en þó með þeim formerkjum að fólk verður að skrá sig í velunnaraklúbb flugfélagsins (Wizz Discount Club) og auðvitað láta sig hafa helgarferðina með rétt svo nærur til skiptanna og tannbursta. Allur farangur kostar aukalega.
Við hlæjum að slíku í þriggja daga pakka á fínustu slóðir. Það finnast jú verslanir í Vín líka og þar má finna einhverjar nýjar nærur og líklega tannkrem líka svona ef fólk er að fara á límingunum 😉
Enda er Vín per se ekkert stórkostleg verslunarborg. Verðlag þar tiltölulega hátt á evrópskan mælikvarða. En maður minn hvað borgin er stórkostleg…
Út með þig!







