Heimur versnandi fer og undir þann hatt falla flug lággjaldaflugfélagsins easyJet til Basel og Genfar í Sviss frá Keflavík. Svo virðist sem flugfélagið hafi hent þeim leiðunum endanlega á haugana.

Basel í Sviss er brilljant. En þangað komumst við sennilega ekki lengur í beinu flugi.

Engar upplýsingar að fá frá easyJet en við teljum víst að Íslendingar geti ekki lengur flogið ódýrt til Basel og Genfar í Sviss með flugfélaginu. Ef marka má bókunarvef easyJet eru alls engin flug þær leiðirnar eftirleiðis.

EasyJet tilkynnir yfirleitt tiltölulega snemma um nýjar flugleiðir eða niðurfellingu flugleiða. Og miðað við að ekki er í boði að bóka flug með flugfélaginu til Genfar eða Basel frá og með þessum mánuði er óhætt að gefa sér að easyJet er að hætta flugi til beggja borga.

Syrtir því enn í álinn hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum ef það er rétt. Þegar hver ferðalangur til Íslands eyðir tvö- til þrjú hundruð þúsund krónur á ferðalaginu munar klárlega um hvern og einn.

Kannski hefur græðgi landans náð á samfélagsmiðla með þeim afleiðingum að hingað vill enginn koma lengur. Sem er auðvitað mínus fyrir þá Frónlendinga sem elska Sviss…