Dabbadona! Ferðaskrifstofa Icelandair, Vita, hvetur landann til að láta drauminn rætast og það með feitum sértilboðum til safaríkra áfangastaða.

Hér að ofan getur að líta nokkur af bestu „tilboðum” Vitaferða út heim á næstunni. Ekki amalegt kann einhver að hugsa. Alicante, Gdansk, Kanarí, Tenerife og Veróna. Aldeilis fínir áfangastaðir ekki satt?

En flagð er nánast alltaf undir fögru og það ekki síst hjá Icelandair og dótturfélögum þess fyrirtækis. En að þarf að kafa aðeins til að fatta það.

Tökum eina stikkprufu. Reynslan sýnir að ein prufa dugar yfirleitt til að sýna fram á tóma græðgi hérlendis.

Alicante þann 12. nóvember og sjö nætur á Albir Playa í tvíbýli með morgunverði. Verð per tvo saman alls 188.060 krónur með Vita. Þetta kann að hljóma sæmilega. Þetta er jú fjögurra stjörnu hótel, morgunverður með í pakkanum og beint flug.

En er það svo í raun?

Skoðum hvaða flugfélög eru að bjóða flug til Alicante þann 12. nóvember og til Íslands aftur viku síðar. Þá kemur í ljós að Norwegian býður flug á þeim dagsetningum og lágmarksfargjald báðar leiðir þegar þetta er skrifað reynist vera 34.549 krónur á kjaft eða 69.098 krónur fyrir tvo saman. Kíkjum svo á margverðlaunaðan hótelvef Fararheill og leitum að gistingu á Albir Playa í viku frá 12. nóvember. Í ljós kemur að lægsta verðið með morgunverði er 58.555 krónur fyrir tvo saman. Alls kostnaður fyrir tvo fyrir flug og gistingu 127.653 krónur.

Það er bara rúmlega 60 þúsund krónum lægra en Vita kallar sitt allra lægsta verð!!! Ef þú ert meðalmanneskja í meðaldjobbi með meðallaun þá tekur aldeilis nokkra daga að vinna fyrir 60 þúsund krónum ekki satt…

Ekki láta plata þig!