Jahérnahér! Ferðamennska er feitur biti fyrir flest lönd heims og skilar þjóðabúum heimsins bráðnauðsynlegum tekjum hvort sem vel eða illa árar. Það hafa Rússar verið lengi að fatta en svo virðist sem Vladimir Pútín hafi loks séð ljósið.

Sánkti Pétursborg hefur lengi verið eina borg Rússlands sem fólk getur heimsótt vandalítið án þess að óska eftir áritun með margra mánaða fyrirvara. En þó aðeins ef þú ert siglandi á skemmtiferðaskipi og þá aðeins í skamman tíma.

Tveir úr ritstjórn Fararheill heimsótt Rússlandið hans Pútín. Sá fyrri árið 2005 og þurfti að gera sér að góðu að bíta neglur, klóra koll og bíða á landamærastöð í litlar fjórar klukkustundir þó öll leyfi og áritun og alles væri eins og klippt út úr leyfisbók rússneska sendiráðsins á Íslandi.

Sá seinni komst inn vesenlítið nokkrum árum síðar þegar HM fór fram í Rússlandi 2018 en yfir það tímabil gáfu Rússar feitan afslátt á áritunum inn í landið. Það breyttist aftur til hins verra um leið og þeirri fótboltakeppninni lauk.

Almenna reglan er sú að vegabréfaáritun þarf til Rússlands og þá áritun þarf að fá hjá sendiráðum landsins með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Jafnvel þá er dvöl takmörkuð við tvær til þrjár vikur.

En nú fara bjartari tímar í hönd hafi fólk áhuga á Rússlandsheimsókn, og við skulum ekki fara í neinar grafgötur með að landið er magnað í öllu tilliti.

Frá og með 2021 geta þegna allra Evrópuríkja plús ríkja sem Pútín telur vinveitt Rússlandi fengið áritun á einfaldasta máta: með því að sækja um það rafrænt og fá jákvætt svar samstundis eða því sem næst.

Eftir því sem við komumst næst er Ísland inni í þeim pakkanum sem merkir að við þurfum ekkert að gera okkur erindi á Túngötuna í Reykjavík með tonn af pappírum með margra mánaða fyrirvara til að heimsækja Rússlandið.

Kominn tími til…