Einhvern tímann langað að heimsækja Sánkti Pétursborg í Rússlandi? Kannski er tíminn í byrjun október þegar þú kemst þangað og heim aftur fyrir svo mikið sem þrjátíu þúsund krónur.

Gjöf en ekki gjald. Flug frá London til Pétursborgar í byrjun október. Skjáskot

Halelújah hvað það er brilljant verð alla leiðina til Rússlands og heim aftur. En staðreynd engu að síður ef þú leitar vel og lengi á vef ungverska lággjaldaflugfélagsins Wizz Air. Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti kemst fólk frá London og til Pétursborgar og sömu leið til baka í október næstkomandi fyrir sömu upphæð og það kostar að kaupa bleyjur og þvottaefni í Bónus. Heilar fimm þúsund krónur eða svo.

Til London á þessum dagsetningum finnum við flug fram og aftur allt niður í 25 þúsund krónur sem þýðir að Pétursborgin er okkar fyrir 30 þúsund krónur alls!!!

Hér auðvitað miðað við að fólk ferðist farangurslaust eða með léttan handfarangur en engu að síður er prísinn aldeilis frábær. Og Pétursborg er 100% frábær líka svo þetta er win-win eða sigur-sigur á hinu ylhýra.

Út með oss 🙂