Tókýó, Singapúr, Ósaka, Amsterdam og Sidney. Þessar fimm borgir heims toppa glænýjan lista hins breska Economist yfir öruggustu borgir heims fyrir ferðamenn árið 2019.

Stórborgin Tókýó er fremst jafningja þegar kemur að öryggi ferðafólks samkvæmt nýrri úttekt Economist.
Ekkert lítið atriði fyrir flest ferðafólk. Þú vilt jú geta valsað um, prófað hitt og þetta og heilsað upp á heimafólk án þess að eiga neitt á hættu að eitthvað alvarlegt gerist á ferðalögum erlendis.
Fræðingar Economist taka þetta alvarlega. Að baki rannsókn þeirra er ekki bara hvar vasaþjófar gera sig gildandi heldur er tekið inn í myndina hlutir eins og loftmengun, gagnaöryggi, samgöngur og heilsugæsla svo fátt eitt sé nefnt.
Listinn er flottur en sennilega óhætt að hafa hugfast að Bretarnir líta aðeins til stærstu borga. Hvergi finnst Reykjavíkin og smærri þekktar borgir erlendis ekki heldur.
Öruggustu borgir heims:
- Tókýó, Japan
- Síngapor, Síngapor
- Ósaka, Japan
- Amsterdam, Holland
- Sidney, Ástralía
- Toronto, Kanada
- WashingtonDC, Bandaríkin
- Kaupmannahöfn, Danmörk
- Seól, Suður-Kórea
- Melbourne, Ástralía







