Hefur það einhvern tímann gerst að bandaríska flugfélagið Delta byði Íslendingum mun betri kjör á flugi en sínu eigin heimafólki? Lufthansa einhvern tíma boðið útlendingum mun betri kjör á flugi en Þjóðverjum? Icelandair hins vegar…

Icelandair mismunar fólki og það ekki í fyrsta skipti…

Allnokkrir miðlar vestanhafs gera mikið úr minnst einu flugtilboði hins íslenska Icelandair þessa síðustu og verstu. Það er nefninlega komist fram og aftur á tilteknum dagsetningum með Icelandair frá Washington DC og á klakann og sömu leið til baka allt niður í 323 dollara á ódýrasta farrými á ýmsum tímum frá október til mars á næsta ári. Miðað við gengi dagsins gerir það rétt rúmar 40 þúsund krónur á kjaft. 20 kallinn aðra leið. Ekki slæmur díll fyrir tólf klukkustunda flugið þessa leiðina!

Okkur hér leist vel á pakkann enda enginn af fjórum riturum á Fararheill sem ferðast með meira en nærur til skiptanna og harðfiskpakka. Harðfiskurinn til að losna við erlent ferðafólk í sömu sætaröð í grænum hvelli án þess að blikka auga og geta svo lagt sig vandræðalaust í fluginu á sardínufarrými 🙂

En ekki varð okkur sú kápan úr klæðinu! Ítrekuð leit, bæði á vef Icelandair og Google Flight, gefur ekkert annað til kynna en að skitinn Íslendingurinn, sama fólkið og hélt Icelandair á floti þegar vel harðnaði í ári, skal gjöra svo vel að greiða tæplega FIMMTÍU ÞÚSUND KRÓNUR fyrir sama pakkann að lágmarki. Sama pakkann, það er að segja, nema öfuga leiðina auðvitað.

Jebbs. Lægsta verð sem Icelandair býður okkur mölbúum til Washington DC og heim aftur á sama tímabili án alls er 48.265 krónur samkvæmt ítarlegri leit fram í febrúar 2019.

Takk Icelandair. Þið eruð öll yndisleg…