Þ arf fólk bólusetningu gegn alvarlegum sjúkdómum áður en haldið er til staða á borð við Kúbu, Balí, Zansibar eða annarra framandi ferðamannastaða?

Veikindi geta herjað á alla alls staðar. Gildir þá einu hvort búið er að bólusetja eður ei.

Stórt er spurt og víst er, miðað við fyrirspurnir á læknamiðlum hérlendis, að margir hafa af þessu áhyggjur. Að vissu leyti eðlilegt enda vill enginn smitast af einhverjum viðbjóð í dúllulegu ferðalagi og vissulega eru sumir sjúkdómar töluvert hættulegri en aðrir.

Nú skal ekkert fullyrt en við fjögur hér sem skrifum greinar á Fararheill höfum ferðast grimmt um heiminn undanfarin ár og aldrei nokkurn tímann fengið sprautu eða pillur við einu né neinu. Ekki fyrir för okkar til Santiago de Cuba, Guyana, Guilin, Praia, Manaus, Colombó, Hua Hin, Kaíró, Mandalay, Dakar, Zansibar, Tapai, Tangier eða Madagaskar.

Sé gúgglað hvort gagnlegt sé að fá bólusetningu gegn helstu óvættum á ofangreindum stöðum er svarið oft og ítrekað já og aftur já og á köflum sagt bráðnauðsynlegt. Þú þarft jafnvel fimm til sex bólusetningar gegn hinum og þessum sjúkdómunum og það stundum allt að sex mánuðum áður en þú heldur af stað til að forvörnin sé virk þegar þú mætir á staðinn.

Nú er enginn hér á ritstjórn að gæta sín neitt sérstaklega á ferðum. Öll elskum við að grípa eitthvað í gogginn hjá næsta strætissala, við förum ekki neitt án þess að prófa allt það sem vinsælt er í hverri borg eða bæ og hræðumst ekki að prófa nýja og ókunna hluti. Ekkert okkar tekur bólusetningu fyrir neina ferð á neinn stað heimsins.

Skemmst frá að segja að öll fjögur hér eru enn við hestaheilsu og þjáumst ekki af HIV, lifrarbólgu, hvítblæði né beinbrunaveiki. Ekkert okkar legið í rúmi erlendis með malaríu eða taugaveiki og enginn reyndar legið í rúmi á ferðalagi vegna eins né neins nema slæms sólbruna og jú slæms niðurgangs í eitt einasta skipti.

En þá ber að hafa í huga að ritstjórnarmeðlimir Fararheill eru á aldrinum 26 til 44 ára og þó áfengisdrykkja sé alltaf með mesta móti á ferðalögum þá erum við að öðru leyti þokkalega eðlileg og sæmilega í formi miðað við allt og allt.

Kúbu höfum við heimsótt þrívegis, Jamaíku tvívegis, Dóminíkanska tvívegis, Kosta Ríka tvívegis, Nikaragva tvívegis, Mexíkó fjórum sinnum, Haítí einu sinni. Aldrei fengið lyf fyrir neina ferð en samt fyllt mallakút af mat innfæddra hvar sem því verður komið við. Aldrei neitt bjátað á.

Að því sögðu er líklega góð ástæða til að fá bólusetningu ef þú eða þið eruð veik fyrir. Þú eða þið eruð með börnin meðferðis eða að þú eða þið ætlið á alræmdar slóðir djúpt inni í frumskógi eða mýri.

Hollt líka að hafa í huga að sé fólk virkilega hugsi yfir hvort það þurfi bólusetningu til lítillar eyju í Karíbahafi á borð við Kúbu en detti slíkt ekki í hug þegar heimsókn til Flórída er á næsta leyti, er óhætt að leggja haus aðeins lengur í bleyti. Það eru bara 155 kílómetrar milli nyrsta odda Flórída og Kúbu. Sé einhver sérstakur viðbjóður á Kúbu er sá viðbjóður 110 prósent til staðar á Flórídaskaga. Og læknaþjónusta á Kúbu töluvert betri en í Flórída 🙂

Alltaf súpergott að setja hlutina í samhengi…