Gömul saga og ný. Ef þú nýtir þér þjónustu þriðja aðila við að bóka flug hingað og þangað um heiminn gæturðu hugsanlega sparað einhverja hundraðkalla í upphafi. En guð hjálpi þér ef eitthvað kemur upp á!

Kiwi er einn þessara milliliða sem þú ættir hundrað prósent að sleppa öllum viðskiptum við. Jafnvel þó þú sparir einhverja hundraðkalla í upphafi.

Enginn skortur á vefmiðlum sem lofa þér gulli og grænum baunum plús auðvitað feitum sparnaði ef þú bókar flugferðirnar hjá þeim en ekki öðrum. Sumir slíkra miðla svo áhrifamiklir og borga svo feitar prósentur að sum flugfélög mæla sérstaklega með slíkum aðilum. Wow Air, til að mynda, auglýsti grimmt þjónustu Kiwi.com, sem er einn slíkra aðila, umfram að bóka beint gegnum Wow Air. Sem er líklega ein ástæða þess að Wow Air er ekki til lengur.

Hvað er vandamálið með millilið við að bóka flug? Er ekki bara besta mál ef þeir aðilar bjóða flug á lægra verði en flugfélögin sjálf? Það virkar jú oft með hótel og gististaði.

Sannarlega er þjónustan yfirleitt sæmileg eða góð og flest okkar komast til og frá gegnum þá aðila á lægra verði en að bóka beint gegnum flugfélagið eða flugfélögin. En munurinn á að nota millilið við að bóka flug annars vegar og gistingu hins vegar er sá að ef eitthvað bjátar á við flugið eru oft ekki margir aðrir kostir í stöðunni. Það á ekki við um gistingu nema þig vanti næturstað í Zhytomir í Úkraínu með tveggja stunda fyrirvara. Varðandi hótel og gististaði er yfirleitt hægt að planta þér á öðrum stað ef eitthvað kemur upp á með litlum fyrirvara og vandræðalaust.

Víst er flugfarið á köflum ódýrara gegnum milliliði en gegnum flugfélögin sjálf en á því er feitur hængur. Sá hængur að ef eitthvað fer úrskeiðis; þú missir af flugi, færð úthlutað öðru sæti en þú borgaðir fyrir, farangurinn verður eftir eða miklar tafir verða á flugi eða flugum, þá er milliliðurinn lítið að fara að aðstoða þig. Flestir hverjir benda lóðbeint á flugfélagið sjálft og þegar þú heldur þangað til að fá lausn þinna mála benda flugfélögin þér á að þú bókaðir gegnum millilið og þú mátt bara eiga þig.

Annað gildir ef þú bókar beint hjá flugfélögum. Þá eru þau nauðbeygð lögum samkvæmt að veita þér þjónustu og koma þér á réttan stað hvað sem tautar og raular. Hjá þeim áttu RÉTT á afgreiðslu og þjónustu en með milliliðum verður þú og þín familía bara að redda sér ef eitthvað bjátar á. Þúsundkallarnir sem þú sparaðir hugsnanlega við bókun með þriðja aðila eru fljótir að fara þegar rellan bilar, seinkar fram úr hófi eða að töskurnar skila sér ekki með ykkur.

Það plús auðvitað að milliliðir í fluginu eru ekki að spandera húrrandi launum á staffið enda borgar bissnessinn sig þá alls ekki. Þess vegna færðu yfirleitt stínker þjónustu ef þú þarft á að halda og allir yppta öxlum og segja sorrí Stína. Jafnvel þó þú heitir ekki Stína…