Misjafn sauður í mörgu fé í fjárhúsunum og sama gildir um íslenska banka og erlend skipafélög. Sum skipafélög eru einfaldlega verri en önnur.

Fjöldi skemmtiferðaskipa í heiminum er rúmlega eitt þúsund talsins. Þau menga meira en ALLUR BÍLAFLOTI í Evrópu.

Flestum þeim er lesandi eru ætti að vera ljóst á þessari stundu að skemmtiferðaskip heimsins menga árlega meira en allur bílafloti Evrópu.

Margir láta það sér í léttu rúmi liggja enda verða þeir látnir og liðnir og með flottar minningargreinar í Mogganum þegar grafalvarleg áhrif þeirrar mengunar fer að taka alvarlegan toll.

En auðvitað er freistandi að taka siglingu eða tvær og það jafnvel þó fólk geri sér grein fyrir húrrandi menguninni. Skemmtisigling er jú la dolce vita út í eitt og aldrei þarf að hafa fyrir einu né neinu um borð.

Því miður er grafalvarleg loftmengun ekki það eina sem Jón og Gunna þurfa að hafa áhyggjur af á skemmtisiglingu um heiminn. Velflest skipafélög heims ganga út á arð og hagnað fyrir eigendur sína og skerða því þjónustu eins og þeim er framast unnt. Stundum of mikið.

Þetta má glögglega sjá á, okkur vitandi, eina opinbera neytendavef heims sem tekur alvarlega á brotum um borð í skemmtiferðaskipum; heilbrigðisyfirvöldum í Bandaríkjunum. Center for Disease Control vestanhafs tekur stöðuna á skemmtiferðaskipum mjög reglulega og birtir á vef sínum skrambi nákvæmar upplýsingar um hversu alvarlega skipafélög taka þjónustu og hreinlæti.

Lesturinn töluvert minna en spennandi fyrir farþega fjölmargra skipa sem sigla með hundruðir og jafnvel þúsundir farþega um heimsins höf…