Ók, við hér ekki fræðingar í einu né neinu og sennilega tómir hillbillís við hliðina á útlærðu háskólagengnu fólki. En við föttum ekki hvers vegna Ísavía er að eyða tugmilljónum króna í auglýsingar fyrir Keflavíkurflugvöll.

Það dregur augnablik úr massífri aukningu farþega um Leifsstöð og fimm mínútum síðar er heljarinnar auglýsingaherferð komin af stað…
Tugmilljónir króna er líklega vanmat. Heilt aukablað með Fréttablaði Jóns Ásgeirs Jóhannssonar, sem kostað hefur almenning milljarða króna, plús langar auglýsingar ítrekað á helstu sjónvarpsstöðvum landsins.
Þar fólk hvatt til að eyða feitum tíma í Leifsstöð enda sé fátt betur fallið til að njóta ferðar en eyða klukkustundum saman í þeirri einokunarmiðstöð sem Leifsstöð er.
En hvers vegna?
Stjórnarformaður Ísavía er Orri Hauksson, forstjóri Símans, sem er sama fyrirtæki og er á topp fimm lista Samkeppniseftirlitsins fyrir grafalvarleg brot gegn almenningi. Herra Hauksson var löngum aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, sama Davíðs og gaf Kaupþingsmönnum tugmilljarða króna af fé almennings daginn fyrir hrun þess banka án þessa að blikka auga og við aldrei séð tangur né tetur af þeim milljörðum síðan.
Hvers vegna eini alvöru alþjóðaflugvöllur í landinu þarf að eyða tugmilljónum króna af skattfé almennings til að minna sama almenning á að koma snemma í Leifsstöð og kaupa skitna samloku á þúsund kall segir sitt um herra Hauksson.
Við hér myndum skilja þetta ef alþjóðaflugvöllurinn á Hvammstanga væri í heiftarlegri samkeppni við Leifsstöð. Svo er ekki. Ef frá eru taldar átta, níu flugferðir frá Akureyri og Egilsstöðum er Keflavíkurflugvöllur með algera einokunarstöðu í flugi til og frá landinu. Hvers vegna að eyða milljónum af skattfé almennings til að auglýsa slíkt?
Kannski er þaullærður herra Hauksson ekkert gáfaðri en við hillbillíarnir hér hjá Fararheill…







