Hlutirnir eru eins og þeir eru. Margir þeir sem vilja gera sem best kaupin í kjörbúðum gleyma reglulega smærri aðilum á borð við Fjarðarkaup. Svona aðilum sem gefa fólkinu sínu frí á tyllidögum en bjóða samt lægri verð og betri þjónustu en krakkarnir og útlendingarnir í Bónus og Krónunni geta nokkurn tíma boðið.

Þó Wow Air hafi fallið frá er enn hægt að komast ýmislegt fyrir lítið 🙂 Mynd Clement Alloione
Sama gildir um breska flugfélagið easyJet sem hefur flogið reglulega til og frá landinu um nokkurra ára skeið. EasyJet er líklega eitt þægilegasta lággjaldaflugfélag heims sökum þess að sætisbil á sardínufarrými miðast yfirleitt ekki við sex ára og yngri og flugfélagið fær almennt sæmilegar einkunnir fyrir reglusemi og þjónustu. Ólíkt sumum lággjaldaflugfélögum sem nú heyra sögunni til.
Með tilliti til þess að fargjöld Icelandair og annarra flugfélaga sem til og frá landinu fljúga hafa hækkað duglega eftir að Wow Air brotlenti með látum er þjóðráð að leggja á minnið hvaða flugfélög eru enn að bjóða allgóða díla ef einhver fyrirvari er hafður um hönd.
EasyJet er eitt þeirra. Á vef þeirra bresku má vel finna fargjöld niður í tíu pund með góðum fyrirvara og ekki halda að flugfélagið sé aðeins að bjóða okkur túra til London og nágrennis. Með easyJet komumst við lóðbeint til hinnar frábæru Edinborgar í Skotlandi, Genfar og Basel í Sviss, Belfast á Norður-Írlandi og Bristol, Luton og London í Englandi.
Þá má ekki gleyma að easyJet flýgur áfram frá velflestum þessum stöðum til hinna ýmsu spennandi staða og millilending getur vel borgað sig þó leiðinleg sé ef stór fjölskylda er á faraldsfæti.







