Íslenska krónan gefið jafn feitt eftir síðustu misserin og Golden State Warriors í einvíginu um NBA-titilinn. Í því tilliti kostar engin ósköp að punga út 90 þúsund krónum fyrir flug frá Keflavík til Kúala Lúmpúr í Malasíu.

Kúala Lúmpúr í Malasíu er kjörvettvangur til að skoða hina ýmsu forvitnilegu staði Asíu.

Almennt talað má alveg komast til fjarlægra landa í Asíu frá Íslandinu góða allt niður í 80 þúsund krónur fram og aftur þrátt fyrir að krónan hafi undanfarið gefið meira eftir en gröð nunna í Hafnarfirði.

Það kostar hins vegar feita leit og yfirlegu til að finna slík fargjöld nema fólk lesi Fararheill.is. Þar má finna ýmislegt kostulegt og miður kostulegt 🙂

Við rákumst á hreint ágæt flugtilboð Turkish Airlines á ýmsum dagsetningum frá Helsinki alla leið til Kúala Lúmpur í Asíu næsta veturinn og fannst sjálfsagt að deila því með lesendum okkar. Tilboð Tyrkjanna frá Helsinki, með stoppi í Istanbúl, frá september og fram til febrúar á næsta ári er ekki slæmt í neinu tilliti. Alls lágmarkskostnaður frá og til Helsinki 55 þúsund krónur á kjaft en reyndar með lítið meðferðis.

Góðu heilli er engin umframeftirspurn á flugi Icelandair til Helsinki mjög langt fram í tímann og við fundum gnótt fargjalda fram og aftur niður í 30 þúsund krónur með handfarangri þá leiðina þegar þetta er skrifað.

Ergo; fram og aftur til Kúala Lúmpúr í Malasíu með stoppi í Helsinki og Istanbúl fyrir 90 þúsund kallinn alls á kjaft. Ekkert frábært en gott engu að síður. Nánar hér.