N íutíu prósent afsláttarkjör eru vandfundin í vestrænum heimi. Slíkt býðst ekki einu sinni við útsölulok í fataverslunum þar sem hámarks afslættir miðast oftast við 70 prósent eða svo. En 90% afsláttur á lestarfargjöldum í Þýskalandi er ekki bara raunveruleiki heldur og auðvelt að negla.

Þjóðverjinn kallar þetta Super Saver fargjöld og það á enskri tungu og væntanlega til að trekkja að erlenda ferðamenn eins og heimafólk.

Slík fargjöld fara fyrst í sölu allra fargjalda SEX MÁNUÐUM fram í tímann en áætlanir lestarfyrirtækja ná aðeins þann tíma fram í tímann. Þeir farmiðar, eðli máls samkvæmt, af skornum skammti og þegar þeir klárast hækkar verðið nokkuð duglega en fer þó sjaldnast í mjög miklar hæðir. Til þess er tíðni ferða of mikil.

Þannig má sem sagt, fá lestarmiða á fáránlegu verði svo lengi sem áhugasamir gæti þess að bóka ferðir sínar rétt tæplega sex mánuði fram í tímann. Og það er þúsundfalt dásamlegra að flakka um þetta fallega land með lest en með flugi eða bifreið. Óhætt að byrja hér.