Fyrir skemmstu tilkynnti Wow Air að flugfélagið hefði fest kaup á nokkrum breiðþotum frá Airbus. Einhver gæti spurt hvar Wow Air sem er rétt að byrja að sýna hagnað í rekstrinum hefur efni á þremur glænýjum breiðþotum en burtséð frá því er okkur hér spurn hvers vegna Wow Air er fyrsta lággjaldaflugfélagið sem kaupir slíkar vélar.

Breiðþotur næsta mál á dagskrá hjá Wow Air en algjörlega á skjön við öll önnu lággjaldaflugfélög. Mynd Isavia

Allt virðist ganga vel hjá Wow Air Skúla Mogensen. Sífellt fjölgar vélum í flotanum og áfangastöðum líka. Sem er extra gott fyrir okkur neytendur hér á Fróni því við komumst þá sífellt lengra fyrir lítinn pening.

Að því sögðu vitum við hér ekki um eitt einasta lággjaldaflugfélag sem brúkar breiðþotur og hvað þá glænýjar rellur beint af færibandinu. Víst fljúga breiðþotur mikið lengra en hefðbundnar mjóþotur en þær eru líka mikið dýrari í rekstri sem er meginástæða þess að lesendur fara aldrei um borð í slíkar þotur hjá lággjaldarisum á borð við Ryanair, easyJet, Norwegian, Transavia, Airberlin, JetBlue eða AirAsia svo aðeins nokkrir risar séu nefndir.

Hvað veit Skúli Mogensen sem forstjórar og stjórnarmenn þessara risafyrirtækja vita ekki um flugrekstur?

Önnur spurning gæti verið hvers vegna risaþotur fimm mínútum eftir að lítið íslenskt flugfélag sýnir hagnað fyrsta sinni?

Er herra Mogensen að fara að taka markaðinn með trompi eða er hann að taka feitan séns? Enginn virðist spyrja þeirra spurningar…