Jamm og jæja. Í stað þess að standa við stóru orðin um að öryggi farþega og áhafna væri númer EITT, TVÖ og ÞRJÚ gerði Icelandair akkurat ekki neitt í því að jarðsetja Boeing Max vélar sínar. Vélar sem dregið hafa yfir þrjú hundruð manns til dauða. Fyrr en nú.

Banvænar vélar Boeing keyrðar áfram hjá Icelandair þangað til í dag. Virðing fyrir mannslífum ENGIN.
Það ætti að vera mynd af Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, við orðið aumingjar í orðabók Háskóla Íslands. Sá tók ákvörðun um að keyra áfram snargallaðar Max-rellur Boeing þrátt fyrir tvö grafalvarleg flugslys á nokkurra mánaða tímabíli. Afsökunin sú að Boeing hefði engar áhyggjur og engir nema plebbaþjóðir í Asíu og Afríku hefðu tekið þá ákvörðun að jarðsetja Boeing Max prontó.
Einmitt það. Og mörg ríki Asíu og Afríku talin til þriðja heims landa þar sem öryggi er eitthvað ofan á myglað brauð.
En kannski eru það fyrsta heims ríki á borð við Ísland sem eru skítaplebbarnir þegar öllu er á botninn hvolft. Tvær glænýjar farþegaþotur sömu tegundar hrapa til jarðar við minnsta hanagal og Icelandair, sem rekur þrjár slíkar rellur, heldur þeim bara áfram í umferð!!!
Hvernig í ósköpunum getur slíkt flokkast sem að öryggi farþega sé númer EITT, TVÖ og ÞRJÚ er ofar okkar skilningi hér. Það hefði einmitt verið til marks um öryggissjónarmið að jarðsetja Boeing Max vélarnar á fimm sekúndum sléttum eftir að önnur slík vélin fórst í Afríku fyrr í vikunni.
Alas, loks í dag henti Icelandair þessum gölluðu rellum inn í skýli til hvíldar. Ekki af því að vafi lék á öryggi þeirra. Neibbs, eingöngu vegna þess að Bretar og Þjóðverjar tóku þá ákvörðun að slíkum vélum væri óheimilt að fljúga um lofthelgina að svo stöddu.
Lágmarkskrafa að íslenskir lífeyrissjóðir, sem eiga stóran meirihluta í Icelandair, selji hluti sína sem allra fyrst. Íslendingar eiga betra skilið en Icelandair.
PS: engin geimvísindi að kaupa ALDREI, ALDREI nýjustu týpu af neinum hlut sem byggir á allra nýjustu tækni. Alltaf að hinkra í ár eða tvö með nýjar tæknivæddar vörur áður en lagt er út fyrir þeim. Sökum þess að það eru hnökrar og vesen á ÖLLU tölvutengdu drasli sem kemur á markaðinn. Microsoft uppfærslur einhver…







