Ef við fengjum krónu í hvert sinn sem við rekumst á þetta fyrirbæri á vef Icelandair, værum við sennilega að slefa í fimm hundruð kallinn eða svo.

Saga Class Icelandair. Enginn lúxus en hægt að draga andann í sætum án þess að rekast í næsta stólbak. Skjáskot
Það eru fáar greinar á ferðamiðlum almennt sem fá meiri lestur en þær sem fjalla um leiðir til að komast frítt eða ódýrt á betra farrými í flugi. Þó sannleikskorn finnist í stöku ábendingum þá eru flugfélög heimsins löngu búin að fatta trixin og loka á þau flest. Fyrirtæki eru ekkert að troða farþegum í sífellt þrengri sæti með sífellt minna innifalið og leyfa svo tilteknum einstaklingum að tölta sísona á lúxusfarrými á sardínuverði.
Icelandair hefur reyndar undanfarin misseri leyft farþegum sínum að bjóða í sæti á betra farrými ef sæti þar eru á lausu. Ekki algalin hugmynd en í þau skipti sem við hér höfum hnotið um slíkt þá eru „tilboðin” oftast nær að skjaga upp í þann kostnað sem sæti á betra farrými kostar upphaflega. Sparnaðurinn í besta falli lítill.
En það er annað sem gæti vel farið framhjá fólki sem leitar að flugi með Icelandair. Það er þetta sem þú sérð hér til hliðar.
Einhverra hluta vegna eru dýrustu sætin í flugi Icelandair á köflum jafn dýr og ódýrustu sætin um borð. Hér til hliðar kostar aðeins SJÖ HUNDRUÐ KRÓNUM meira að dotta í breiðu og góðu sæti á Saga Premium en það er að sitja nánast lóðbein í sardínusæti afturí. Þá kostar líka SJÖ HUNDRUÐ KRÓNUM meira að taka Saga Premium Flex með öllu gotteríinu og að svitna á sardínufarrými Flex.
Líkast til er um tæknileg mistök að ræða því þetta meikar engan sens. Plúsinn þó sá að við hér dettum um þetta merkilega oft við leit á vef flugfélagsins. Sakar aldrei að hafa augun hjá sér 🙂







