Landinn fátt elskað meira en utanlandsferðir í um 40 ár eða svo eða þann tíma sem meðalmaðurinn hérlendis hefur getað ferðast út fyrir landsteina án þess að leggja húsið og börnin að veði. Þá loks vaknar Moggi til lífsins og opnar ferðavef…

Mogginn kveikir loks á þeirri peru að ferðir og ferðalög séu kannski sniðugt umfjöllunarefni…

Til hamingju Mbl með nýjan og ferskan ferðavef, sem skoða má hér, sem vonandi ýtir enn meira á fólk að ferðast og lifa lífinu meðan það er. Það er jú fræðilega sannað að það bæði lengir lífið og bætir líðan að vitna kúltúr og líf annarra þjóða. Slíkt gerir sennilega meira til að lengja lífið og gera okkur hamingjusamari en öll þessi heilsuþvæla sem bylur á okkur öllum stundum í öllum helstu fjölmiðlum.

Sök sér að herra Oddsson, ritstjóri, sé áratugum á eftir með vef um ferðalög. Verra kannski að ráða fyrrum elskhuga Skúla Mogensen, forstjóra Wow Air, til að standa að þeim vef. Það segir okkur hér bara að vefurinn atarna verður yfirborðskennd súpa en ekki gagnrýninn vefur eins og allir fjölmiðlar eiga að vera í grunninn til að lýðræði þrífist fyrir opnum tjöldum. Því þeir fjölmiðlar sem eru ekki gagnrýnir í eðli sínu eru ekkert annað en auglýsinga- og blekkingarmiðlar. Og höfum við ekki öll fengið nóg af slíku?

Friðrika Hjördís Geirsdóttir, ritstjóri ferðavefs Mogga, er fögur stúlka og skemmtileg. En blaðamaður er hún ekki og alltof tengd áhrifamiklum aðilum í ferðabransanum til að geta skrifað staf á blað án þess að hagsmunir ráði þar ríkjum. Annaðhvort hagsmunir þeirra auðjöfra sem eiga Moggann eða hagsmunir þeirra sem hún er að fjalla um í það og það skiptið. Sem merkir að lesendur fá aldrei sannleikann upp á borð.

Út með Friðriku og inn með ótengdan aðila og þessi vefur gæti átt sér líf í framtíðinni…