Skrýtið fólk ræður ríkjum hjá Vita-ferðum, dótturfyrirtæki Icelandair. Þeim þykir aldeilis eðlilegt að bjóða upp á TVO FARARSTJÓRA í þriggja daga ferð til Granada á Spáni!

Þriggja nátta ferð til Spánar með TVEIMUR FARARSTJÓRUM!!!
Hmmm. Er ekki óhætt að slá föstu að varla þarf fararstjóra og hvað þá tvo talsins í þriggja nátta túr til Spánar? Nema auðvitað ferðin atarna sé fyrir alvarlega vitskert fólk. Þá meikar sens að hafa fjölda fólks til taks til að gera og græja.
Að gamni slepptu, þá er þriggja nátta túr Vita-ferða til Granada á Spáni þann 29. mars til 1. apríl, alveg spinnegal. Granada er tiltölulega ómerkileg og mökkmengandi spænsk borg ef frá er talið hið stórkostlega virki Mára sem þekkist sem Alhambra og lesa má um hér.
Alhambra er kostulegt mannvirki og skoðunar vert fyrir blinda, heyrnarskerta og jafnvel minnislausa alkohólista á borð við Gunnar Braga Sveinsson.
En borgin að öðru leyti? Neibbs, ekki svo mikið merkileg og hér er mengun gríðarlegt vandamál.
Hvers vegna Vita sendir tvo erindreka til að ferja tuttugu Íslendinga um Granada í þrjá sólarhringa er töluvert á skjön við eðlilega viðskiptahætti. Eru fararstjórarnir svo illa farnir af elli að þeir meika ekki lengri vinnu en einn og hálfan sólarhring? Eða er þetta bara trix til að fá fólk til að borga enn meira fyrir hlutina?
En kannski er ástæðan sú að um sérstaka „Moggaferð” er að ræða og allir vita að kjarnalesendur Moggans ganga ekki fylktu liði í viti né glóru…







