Forvitnir Íslendingar munu finna Alcalá la Real fyrr en síðar ef þvælst er hugsunarlaust um Andalúsíu á bíl án þess að bensíngjöfin sé stigin til botns. En er sá staður stopps virði?

Það þarf að fara töluvert langt upp í fjallahéruð Andalúsíu til að detta um Alcalá la Real. Þú þarft að fara töluvert utan alfararleiða til að rekast á þennan 20 þúsund manna bæ. En ólíkt kannski mörgum öðrumm bæjum á hálendi Andalúsíu þá gefur nafnið ákveðnar vísbendingar. Þó aðeins ef fólk kann staf í spænsku tungumáli.

Alcalá la Real héti líklega aðeins Alcalá, og væri tómt skítapleis,  ef fyrr á öldum hefðu konungar og drollur ekki mætt á svæðið til að sparka í rassa hermanna sem nenntu ekki að gæta hagsmuna konungsfjölskyldunnar. En það gerðu konungbornir og líklega aðeins sökum þess að flýjandi og hræddir Márar fyrri alda byggðu hér aldeilis fínan kastala og varðturna til að verjast kristnum plebbum. Varnarvirki sem féllu í skaut kristinna áður en yfir lauk.

Spólum fram nokkur hundruð ár og Alcalá hefur haldið sínum konungsstaðli. Ekkert á Spáni má vera kennt við La Real, konunglegt, án þess að hafa til þess sérstakt leyfi. Sem dæmi er fótboltaliðinu Real Madrid, sem bókstaflega merkir konunglega Madríd, óheimilt að nota nafnið án blessunar konungs.