H ætt er við að margir geri þau mistök, þegar nokkrir eru að ferðast saman, að leita að og bóka farmiða fyrir allan hópinn í einu. Það gæti verið kostnaðarsöm mistök.

Það getur sparað allnokkra þúsundkalla að bóka flugfargjöld eitt og eitt í einu séu margir að ferðast saman
Við höfum tæpt á þessu áður en góð vísa er sjaldnast of oft kveðin og allra síst í kútinn.
Velflest, ef ekki öll, flugfélög nota æði flóknar kúnstir til að reikna út og gefa upp verð á flugi á hverjum tíma fyrir sig. Sá útreikningur tekur mið af mörgu en sérstaklega skiptir máli hversu mörg laus flugsæti eru eftir í hverjum verðflokki fyrir sig á hverjum tíma.
Flugfélögin vita að sé heill vinahópur eða stórfjölskyldan að fara saman eru 99,9 prósent líkur á að öll flugsætin séu bókuð á sama tíma svo tryggt sé að allir komist nú örugglega með.
En sá ótti getur kostað hvern og einn farþega í ferðinni duglega upphæð. Raunin er að oft, þó ekki alltaf, eru fargjöld fyrir einn stakan einstakling lægri en fargjöld þeirra sem bóka fimm til tíu sæti saman í einu.
Hver og einn getur gengið úr skugga um þetta á bókunarvélum flugfélaganna. Lausleg stikkprufa Fararheill nýlega leiddi í ljós að hjá Icelandair komst einn farþegi til og frá Frankfurt í Þýskalandi fyrir 84.890 krónur. Nákvæmlega sama leit fyrir sex manna hóp á sama tíma og til sama staðar leiddi í ljós að kostnaður á hvern og einn reyndist vera 91.790 krónur. Það er munur upp á 6.900 krónur á kjaft.
Sama varð uppi á teningnum hjá Wow Air. Nýleg stikkprufa þar leiddi í ljós að einstaklingur sem hafði hug að fljúga til Berlínar þurfti að greiða fyrir það 49.053 krónur. En hefðu sex vinir, vinkonur eða sex manna fjölskylda bókað sex sæti sömu leið í sömu vél á sama tíma greitt 50. 969 krónur á haus. Vissulega engin stórupphæð en safnast þegar saman kemur og verðmunurinn alls 11.496 krónur. Það er ekkert klink.
Ofangreint auðvitað á skjön við öll markaðslögmál því eðlilega reglan er sú að afslættir fara hækkandi því meira sem þú kaupir af vöru en þetta gerist vegna þess að flugfélögin skipta fargjöldum niður í frumeindir. Kannski aðeins sett fimm sæti á allra lægsta verð, átta sæti á næstlægsta verði og svo framvegis og svo framvegis.
Sem er stór ástæða þess að Fararheill hefur ítrekað kallað eftir að flugfélögin gefi upp fjölda sæta sem auglýst eru á lágmarksverði. Eins og staðan er í dag er ekkert sem kemur í veg fyrir að setja eitt einasta flugsæti á 7.999 og auglýsa það en segja svo allt uppselt þegar það er selt. Önnur fargjöld mun hærri.
Allavega er þetta gott að hafa í huga nú þegar flugfargjöld til og frá landinu hækka duglega og munu halda áfram að hækka duglega með auknum straumi erlendra ferðamanna til landsins.
Ráð er sé um stærri hópa að ræða en sex til átta manns að reyna að fá tilboð í flugið fyrir alla í stað þess að brúka bókunarvélar. Það virkar þó eingöngu ef virk samkeppni ríkir og það er takmarkað raunin hérlendis.




