Par eða hjónakorn til sólarparadísarinnar Tenerife í vikustund á ágætu þriggja til fjögurra stjörnu hóteli? Slíkt kostar parið almennt gróflega svona 130 til 180 þúsund krónur hjá innlendum ferðaskrifstofum að vetrarlagi að lágmarki. Þó ekki á Svörtum föstudegi.

Tenerife verður seint leiðinlegt að heimsækja fyrir sólþyrsta klakabúa á Fróni. En merkilegt hve verð á ferðum fer lágt á svörtum föstudegi…
Svartur föstudagur, Black Friday, liðinn hjá þetta árið. Ekkert per se að því að almenningi gefist kostur á súpertilboðum en öllu verra að við eigum öll of mikið af alls kyns drasli og glingri og þurfum ekki meira. Jafnvel þó það sé á kostakjörum.
Ýmis konar tilboð buðust föstudaginn þann frá bæði ferðaskrifstofunum og flugfélögunum en þrátt fyrir nokkra yfirlegu fundum við sjaldnast tilboð þann daginn sem voru eitthvað mikið lægri eða betri en tilboð þessara aðila almennt.
Það er að segja ef frá er talið tilboð Heimsferða skíthælsins Andra Más Ingólfssonar. Þar fannst um tíma vikupakki á góðu fjögurra stjörnu hóteli í janúar fyrir tvo saman niður í tæpar 80 þúsund krónur. Tæplega 40 þúsund krónur á haus!!! Vel boðið og umrætt tilboð seldist upp hraðar en framsóknarmaðurinn Ólafur Ólafsson tapaði ærunni sinni.
Svarta-föstudagstilboðið var þannig HELMINGI ódýrara en hefðbundið verð á slíkum pakka hjá Heimsferðum. Víst vilja allir bjóða flott tilboð á Svörtum föstudegi en aðeins stöndug risafyrirtæki geta boðið pakkaferðir á niðurgreiddu verði og Heimsferðir stendur sannarlega ekki mjög vel með tilliti til eigandans sem nýlega fór með heilt flugfélag þráðbeint á hausinn.
Það því engar líkur á því að Heimsferðir geti boðið hjónakornum til Tenerife fyrir 80 þúsund krónur án þess að hagnast á því. Sé það rétt metið hjá okkur hér er óhætt að slá föstu að 80 þúsund kallinn sé raunverð með lágmarks hagnaði fyrir ferðaskrifstofu á borð við Heimsferðir að senda hjónakorn til Tenerife í vikutíma. Að því gefnu er hefðbundið verð, 130 til 180 þúsund krónur, lítið annað en pjúra okur út í eitt…







