Hmm. Nú líður okkur hér dálítið eins og manneskju sem verður það á að sparka í geitungabú á röltinu um Guðmundarlund. Pínkulitli Fararheill hefur síðustu klukkustundirnar verið undir feitri netárás á pari við það sem risamiðlar þurfa að eiga við daglega.

Viti menn! Pínkulítill íslenskur ferðavefur undir harðri árás netglæpamanna.
Einkennileg tilviljun ekki satt. Stærsta netárás sem nokkru sinni hefur verið gerð á Fararheill.is á sér stað hálfum sólarhring eftir að við bentum lesendum á að pabbi fjármálaráðherra landsins lifir opinberlega á lúsarlaunum en lifir þó eins og blóm í eggi þegar allt er til talið eins og lesa má um hér.
Þegar þetta er skrifað hefur þjónustuaðili okkar blokkerað fjörutíu þúsund yrkja eða botta sem á síðustu sex klukkustundum hafa reynt að troða vefnum okkar í svaðið. Fram að því var metið tíu þúsund árásir á einum sólarhring.
Ekki verður hjá því komist að hugsa að vinir ákveðins einstaklings í Garðabæ hugsi okkur þegjandi þörfina því það hefur sannarlega þótt fréttnæmt að faðir fjármálaráðherra greiði aðeins helming þess sem við hin þurfum að greiða í skatta.
Óvíst hvort við þolum enn feitari árásir en eru í gangi þegar þetta er skrifað. En ef við dettum út þá veistu af hverju 😉







