Hmmm. Hvernig hljómar að flatmaga á sólbrenndum ströndum Cancún í Mexíkó í nóvember, desember, janúar eða febrúar fyrir aðeins rétt rúmar hundrað þúsund krónur eða svo?

Jamm, það hljómar ekki illa. Lágmarkshitinn 20 gráður eða svo meðan fólk hér heima þarf að grafa sig út snjósköflum til að komast í vinnuna.

Víst þarf ekkert til Cancún neitt til að dúllast í 25 gráðunum að vetrarlagi. Til þess nægir að skottast til Kanaríeyja. En Kanaríeyjur eiga engar stórmerkar fornminjar, verðlag þar er hærra en í Mexíkó og heimamenn fjarri því eins vinsamlegir.

Bandaríska flugfélagið American Airlines er þessa stundina að bjóða sértilboð á flugi til og frá Cancún frá flugvellinum í Dallas – Fort Worth. Tilboðið fyrir sex stunda flugið aðeins 20 þúsund kall á mann báðar leiðir langt fram á næsta ár.

Hvers vegna kemur það okkur við hér úti á ballarhafi? Jú, það nýtist okkur vegna þess að Icelandair býður beint flug til Dallas – Fort Worth í vetur og það niður í 80 þúsund kall þegar best lætur. Með því að tvinna þetta tvennt saman er hægt að njóta á Cancún yfir íslenska háveturinn fyrir hundrað kallinn á kjaft 🙂

Margt verra undir sólinni en það 😉