Látum okkur nú sjá. Heldimmur veturinn að gera okkur kolvitlaus í janúar og febrúar. Aðeins minni vetur í höfuðborgum Grikklands og Egyptalands og þangað getum við komist fyrir svo lítið sem 35 þúsund krónur.
Allt hægt ef vilji er fyrir hendi segja sögur og það á sannarlega við um túra til Aþenu (10 stiga hiti að meðaltali í janúar) og eða Kaíró (14 stiga hiti að meðaltali í janúar) á tilteknum dagsetningum í vetur.
Sjáið til, gríska flugfélagið Aegan Airlines er þessi dægrin að bjóða sértilboð á flugi frá Amsterdam í Hollandi til Kaíró með millilendingu í Aþenu. Tilboðið fantagott eða rétt tæpar 20 þúsund krónur báðar leiðir á tilteknum dagsetningum í janúar og febrúar en það reyndar án annars en handfarangurs.
Góðu heilli finnast fínustu flugfargjöld héðan til Amsterdam þessa mánuði og þá sérstaklega með Wow Air sem kemur okkur þangað og heim aftur allt niður í sextán þúsund krónur en aftur án farangurs. Samtalan því alls 36 þúsund krónur eða svo. Með farangur alla leiðina má gera ráð fyrir að fimmtán þúsund krónur bætist ofan á verðið svona gróflega.
Sem merkir að Aþena eða Kaíró er okkar fyrir tombóluverð og það þegar fólk, fjöll og firnindi eru við frostmark hér heimavið. Og seint telst leiðinlegt að dvelja stundarkorn í Amsterdam þó kalt sé þar líka 😉







