Antalya í Tyrklandi fyrir rúman sex þúsund kall. Aþena í Grikklandi fyir 9.600. Eða túr til Dúbai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir 11.500 krónur. Svo ekkert sé minnst á skotterí til Bangkok í Tælandi fyrir 19 þúsund krónurnar.

Hin árlega risaútsala Norwegian hafin. Sakar ekki að kíkja…
Hljómar bara þokkalega vel ekki satt? Ofangreint eru dæmi um útsöluprís á flugferðum Norwegian til þriggja áfangastaða í vetur en norska flugfélagið er með sína árlegu stórútsölu í gangi núna og fram til mánaðarmóta.
Ólíkt íslensku flugfélögunum sem oft bjóða útlendingum allra lægstu verð fer Norwegian öðruvísi að. Útsalan atarna miðast við Norðmenn og flug frá Osló. Þar með ekki sagt að við getum ekki notið góðs af en við þurfum að bæta ofan á þetta fluginu til Osló og væntanlega heim aftur fyrir flest okkar.
Það setur auðvitað mínus á súpergóð fargjöldin en þó ekki endilega. Norwegian, eins og Icelandair og SAS, flýgur beint á milli Keflavíkur og Oslóar og lægstu fargjöldin aðra leið í vetur fást allt niður í 6.600 krónur.
Það því fræðilega þannig hægt að ferðast til sólríkrar Antalya og heim aftur undir 40 þúsund krónum á mann á ódýrasta fargjaldi fram og aftur. Fyrir utan að við komumst alls ekki til Tyrklands beint héðan þá er verðið aldeilis ekki til að kvarta undan heldur.







