Veturinn 2017 gátu Íslendingar sem vildu sól og sælu á Spáni valið þokkalega milli fimm áætlunarflugfélaga. Ári síðar er staðan öllu verri og samkeppni þangað lítil sem engin.

Hætt við að vetrardvölin á Spáni verði ívið dýrari en fyrir ári síðan.

Líklega er þetta merki um öllu minni áhuga erlendra ferðamanna að koma til Íslands að vetrarlagi en við erum í dálítið vondum málum ef okkur dreymir um ódýrar flugferðir til Spánar þennan veturinn.

Síðasta vetur bauðst okkur að fljúga nánast allan veturinn til Barselóna, Alicante, Madríd og jafnvel til Almeríu og Malaga svona fyrir utan Kanaríeyjarnar og samkeppni var á mörgum þeirra flugleiða. Nú, ári síðar er samkeppnin að engu orðin.

Svo þú vilt dæmi?

Jah, bæði Primera Air og Wow Air hætta beinu flugi til hinnar vinsælu Alicante strax í byrjun nóvember. Primera Air, Vueling og Icelandair hafa þegar slúttað beinu flugi til Barselóna og hvorki Icelandair né Iberia Express fljúga milli Keflavíkur og Madríd í vetur. Þess utan er Primera Air ekkert lengur að bjóða flug til Malaga eða Almeríu langt fram eftir vetri.

Þá er staðan allt í einu sú að í stað þess að notfæra sér ágæta samkeppni til að njóta lægri fargjalda er aðeins komist beina leið til Alicante yfir háveturinn með hinu norska Norwegian. Langi fólk til Barselóna stendur valið aðeins milli Wow Air og Norwegian.

Þetta er vægast sagt miður og þýðir auðvitað að við þurfum að greiða töluvert meira fyrir skotterí í spænsku sólina þegar vetur konungur gerir sig virkilega heimakominn á klakanum. Þá líka þjóðráð að negla flug eigi síðar en núna áður en almenningur gerir sér þetta ljóst 😉