Þetta auðvitað ekkert sem ferðamálaráð landa heims vilja hafa hátt um en það sem af er þessu ári hafa sautján einstaklingar látist í Grikklandi og 23 á Ítalíu. Hátt í fimm hundruð alls smitast í báðum löndum. Ástæðan? Vestur-Nílarvírus.

Moskítóflugur bera gjarnan með sér alls kyns viðbjóð. Og fyrir utan Zika-veiruna er Vestur-Nílar veiran einna verst.
Moskítóflugur í heitu löndunum eru alltaf hundleiðinlegar. En þær geta líka verið miklu verri en hundleiðinlegar; þær geta verið stórhættulegar og sjaldan hættulegri en þegar þær bera með sér Vestur-Nílarvírusinn.
Spánn og Frakkland sloppið að mestu leyti þetta sumarið en hið sama verður ekki sagt um Ítalíu og Grikkland og Balkanskagann. Á þessum stöðum hefur fjöldi tilfella Vestar-Nílar vírussins aukist fimmfalt þetta árið miðað við fyrra ár. Í þessu tilfelli ágætt að hafa í huga að alls engin tilfelli þessa viðbjóðs mældust í Evrópu allri fyrr en árið 1996. Nú virðist þessi fjandi verið kominn til að vera.
Hvað er svo Vestur-Nílar vírus? Jú, það er veira sem lifir í blóði moskítóflugna og ferðast frá flugunum í blóð manna þegar moskítóflugurnar gera sitt. Ef þú ert hraust/-ur og á besta aldri og sýkist má búast við háum hita, ælupest, höfuðverkjum, óvenju mikilli þreytu og verkjum víða um líkamann. En ef þú ert ekki í þokkalegu formi getur niðurstaðan orðið öllu verri: dauði.
Moskítóflugur eru auðvitað allra mest á ferðinni að næturlagi og þegar hitinn er hvað mestur svo ekki þarf að hafa miklar áhyggjur að vetrarlagi. En sé hugmyndin að ferðast til þessara landa næsta sumarið er ágætt að vera vel birg af flugnaeitri og jafnvel gáfulegt að sofa undir flugnaneti.
Allur er varinn góður 😉







