Ók, það er í raun ekki hægt að vera fúll út í íbúa Kosta Ríka. Þeir upplifað alls kyns leiðindi. En vestanhafs er nú töluvert gert úr þeirri áráttu Kosta-Ríkana að klappa eins og þeir eigi lífið að leysa þegar rella lendir. Nokkuð sem við Íslendingar gerðum í massavís um áratugaskeið.

Lof í lófa fylgir öllum lendingum véla til Kosta Ríka og er skemmtilegur siður. Skjáskot

Yngra fólk er ábyggilega engu nær um hvað við erum að fara. Hinir eldri vita það mætavel. Íslendingar klöppuðu flugstjórum og áhöfnum ríkulega lof í lófa í hvert sinn sem farþegavél lenti áfallalaust í áratugi. Ýmsum fannst það hallærislegt en nú kemur í ljós að það gerðu fleiri en Íslendingar. Það sem meira er; Kosta-Ríka búar gera þetta ennþá.

Enginn hér á ritstjórn flugstjóri, aðstoðarflugstjóri eða áhafnarmeðlimur í farþegavél. En það þarf heldur enginn að vera starfandi í þessum geira til að vita að lófaklapp kemur þakklátu brosi á varir áhafnar flugvélar ekkert síður en leikara á stóra sviði Þjóðleikhússins að sýningu lokinni. Fólk er bara að þakka fyrir gott stöff á góðan og kurteisan máta.

Hið ágæta bandaríska flugfélag JetBlue gerir töluvert úr þessu í nýjustu auglýsingum sínum eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Príma mál alveg hreint og það minnti þrjá úr ritstjórn á að farþegar í vélum hins portúgalska Sata, nú Azores Airlines, gáfu undantekningarlaust líka feitt lófaklapp þegar rella lenti hér fyrir nokkrum árum síðan.

Og hvað eiga Ísland, Asóreyjar og Kosta Ríka sameiginlegt? Jú, þetta eru allt eyjur úti í ballarhafi.

Gaman að þessu 🙂