Bæði „íslensku” flugfélögin all-in að heilla útlendinga þessi dægrin eftir niðurgang í rekstrinum. Við áður bent á mögnuð fargjöld sem Icelandair býður útlendingum en ekki okkur og þeir hreint ekki einir um slíka mismunun.

Einkar safaríkt tilboð finnst nú á kanadískum vef Wow Air sem gildir um flug fram og aftur frá bæði Montreal og Toronto hingað til lands næstu mánuðina. Tilboðið á ódýrasta farrými heilar 20.300 krónur miðað við gengi dagsins. 10.150 krónur hvora leið fyrir sig.

Nákvæmlega ekkert að slíku tilboði en sorglegra að langi Íslendingum sömu leiðina á svipuðum dagsetningum á sama farrými er lágmarksverðið 36 þúsund krónur á kjaft. Það, gott fólk, er 70 prósent hærra verð en Kanadamaður greiðir fyrir sama pakka.

Enginn hér á ritstjórn lögfræðimenntaður en eitthvað myndi nú birtast í fjölmiðlum ef Byko seldi Litháum spýtur með 50 prósenta álagningu umfram aðra svo dæmi sé tekið. Fyrir utan auðvitað að slíkt er ólöglegt með öllu að mismuna með þeim hætti. Þess vegna má ríkið, til dæmis, ekki taka hærri gjöld af erlendu ferðafólki við náttúruperlur en það tekur af Íslendingum sjálfum. Það er mismunun og slíkt óleyfilegt.

En hjá „flugfélögunum okkar” virðist allt í góðu að gefa okkur landsmönnum löngutöng og bjóða útlendingum fargjöld sem okkur hefur aldrei boðist og mun sennilega aldrei bjóðast. Svo liggja íslensk stjórnvöld nótt og dag yfir áætlunum um að bjarga þessum sömu flugfélögum og mismuna okkur.

Allt eðlilegt…