Nýtt og ferskt lággjaldaflugfélag sem býður áður óséð fargjöld yfir Atlantshafið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Einhver gæti haldið að slíkt flugfélag nyti sjálfkrafa byrs í seglin. En Primera Air fokkaði því upp á mettíma.

Primera Air aldeilis að fá það óþvegið á samfélagsmiðlum erlendis.
Bæði Bretar og Bandaríkjamenn töluvert sjóaðri í kvörtunum en við Íslendingar sem látum fyrirtæki steikja okkur í heitri olíu dögum saman án þess að reka upp eitt ramakvein. Svo höldum við bara áfram að eiga viðskipti við sömu fyrirtæki eins og ekkert hafi í skorist. Eða hvers vegna eru fyrirtæki á borð við Byko og Síminn á lífi eftir gróf og ítrekuð samkeppnislagabrot árum saman? Líkast til vegna þess að Íslendingum finnst gott að láta fífla sig aftur og aftur og aftur.
Illu heilli fyrir flugfélagið Primera Air, í eigu Andra Más Ingólfssonar, sem varð ríkur á viðskiptum við Íslendinga, eru Bretarnir ekki alveg jafn sáttir við kaktus í afturendann.
Tvö frábær dæmi um það má sjá hér til hliðar.
Annars vegar er um að ræða einkunnavefinn Trustpilot sem mælir ánægju fólks með hin og þessi fyrirtækin í Bretlandi og víðar. Rúmlega 500 einstaklingar hafa gefið flugfélaginu einkunn þegar þetta er skrifað og niðurstaðan afgerandi: 73% þeirra segja flugfélagið lélegt. Primera Air fær 1,6 af 10 mögulegum þar á bæ.
Hitt dæmið er kannski merkilegra. Það hefur verið stofnuð sérstök twitter-grúppa með fólki sem hatar Primera Air og varar alla við ferðum með flugfélaginu. DoNotFlyPrimera er fyrir fólk sem hefur yfir einhverju að kvarta yfir viðskiptum við Primera Air. Á réttum tæpum tveimur mánuðum hafa rúmlega 1300 tíst birst þar á bæ.
Auðvitað verður líka að skoða þetta klassíska eins og einkunnir Primera Air á Tripadvisor. Er flugfélagið að rokka og róla þar mikið?
Neibbs.
Af tæplega þúsund manns sem tjáð sig hafa á þeim risavefnum eru rúm 48 prósent sem telja flugfélagið lélegt eða hræðilegt. 42 prósent gefa flugfélaginu góða einkunn eða frábæra og rúm tíu prósent telja fyrirtækið slefa í meðallagið.
Andri Már þarf að fara að girða sig og sitt fyrirtæki betur í brók. Því umsagnir á samfélagsmiðlum ráða orðið töluverðu um hvert fólk snýr sínum viðskiptum burtséð frá lágum fargjöldum.







