Ef forstjóri og eigandi Primera Air hefði minnsta snefil af samvisku þá gæti viðkomandi varla komið dúr á auga að næturlagi. Viðskiptavinir  flugfélagsins eru nefninlega lítt hrifnir og láta það í ljós.

Primera Air ekki beint að fá Óskarsverðlaun þarna úti…

Helsti eigandi hins lettneska flugfélags Primera Air, hinn rammíslenski Andri Már Ingólfsson, er með sér sófa í bankanum sínum á Cayman-eyjum þar sem hann telur peningana sína. Og heimildir herma að hann brosi og hlæi heil ósköp þegar hann er ekki að hlaupa á ströndinni.

Sorglegra að viðskiptavinir Primera Air brosa töluvert minna en eigandinn. Reyndar ekki neitt ef út í er farið þrátt fyrir súpergóð fargjöld flugfélagsins. Það helgast af þjónustu sem er daprari en meðallaun hjá HB Granda.

Ekki taka okkar orð fyrir. Kíkið á örfá dæmi hér að neðan á meðan þið þakkið guði og lukkunni að Primera Air telst ekki íslenskt flugfélag lengur…

Bætum við þetta að flugfélagið tekur sér allt að fjórtán mánuði að greiða bætur vegna vesens og við erum komin með skítabatterí dauðans.

Eða ert þú enn að eiga viðskipti við svona skíthæla?