Forstjóri Toyota, og stjórnarformaður Icelandair, er greinilega með plön um hvernig snúa má rekstri flugfélagsins til hins betra í hvelli. Með því að bjóða Kananum megafargjöld sem eru allt að því 150 prósent lægri en íslenska flugfélagið býður Íslendingum.

Ekki aðeins hafa lífeyrissjóðir okkar tapað milljörðum króna á Icelandair heldur og heimtar flugfélagið að við borgum miklu hærra verð en allir aðrir…
Við hér höfum beðið í áraraðir eftir því að SAS bjóði okkur lægri fargjöld en þeir bjóða Svíum. Árum saman eftir að Lufthansa fljúgi okkur til Þýskalands á 100 prósent lægri fargjöldum en þeir bjóða sínu eigin fólki. Svo ekkert sé minnst á easyJet, Norwegian, Niki, Transavia, Vueling, Iberia Express, British Airways, Wizz Air eða Delta. Okkur vitandi hafa engin þessara flugfélaga boðið Íslendingum upp á nein sérstök fargjöld umfram aðra farþega sína.
En Icelandair finnst það hið besta mál.
Skoðum aðeins hvað Bandaríkjamaður í höfuðborginni Washington DC þarf að borga fyrir flug með Icelandair til Helsinki í Finnlandi með stoppi í Keflavík:
Húha! Viðkomandi þarf að punga út heilum 32 þúsund krónum FRAM OG AFTUR. Látum liggja milli hluta að þetta er á sardínufarrými með aðeins handtösku innifalið í miðanum. Þetta er samt stórkostlegt tilboð á löngu flugi og súperbónus að tími nægur í Leifsstöð til að dýfa sér ofan í Bláa lónið og/eða skoða markverða hluti á Reykjanesinu án þess að blása úr nös.
Okkur hér leiðist hvorki Helsinki né Washington og því var rokið á íslenskan vef Icelandair til að tékka hvort eitthvað sambærilegt væri nú kannski að finna þar.
Neibbs! Því fór fjarri.
Kíkjum á lágmarksverð til Helsinki annars vegar og Washington DC hins vegar frá Keflavík á sama tímabili:

Dabbadona!!! Hið íslenska flugfélag heimtar sirkabát 151 PRÓSENT hærra verð af okkur en Kananum fyrir svipaðan pakka á sardínufarrými. Kaninn sleppur með 32 þúsund kall en lágmarkið fyrir okkur mölbúann rúmar 80 þúsund krónur á sama tímabili…
Sök sér ef þetta væri í fyrsta skipti sem við finnum slíkt okur gagnvart landanum meðan aðrir njóta góðs af. Svo er þó alls ekki. Þetta æði algengt. Svo er landinn hissa að við mælum með að sniðganga þetta fyrirtæki. Og jafnvel Toyota líka 😉







