Fimm þúsund tvö hundruð áttatíu og fimm krónur kaupa engin ósköp á klakanum. Fimm pylsur eða svo á Bæjarins bestu eða tveggja vikna áskrift að Stöð 2. En þessi upphæð dugar okkur líka til að skottast til London síðla vetrar 🙂
Svo lágt fargjald aðra leið til London er ekki alveg einstakt. Fargjöld easyJet ná annars lagið þessum lægðum þá leiðina sé bókað með góðum fyrirvara. En það er nokkuð einstakt að komast til bresku höfuðborgarinnar á þessu fargjaldi með British Airways.
Breska flugfélagið er að selja fjölda sæta til London og sömu leið til baka niður í 5.285 krónur með sköttum og gjöldum og handfarangur innifalinn strax í byrjun næsta árs. Töluverður fjöldi sæta fæst aðra vetrarmánuðina niður í 5.885 eins og sést glögglega á meðfylgjandi töflu.
Skemmst frá að segja að þetta er mun lægra verð á þessari leið en Wow Air og Icelandair bjóða. Lægsta verð aðra leið sem við finnum á vef Wow Air í byrjun næsta árs reynist vera 8.498 og Icelandair býður ekkert lægra aðra leið en rúmar tólf þúsund krónur.
Það má sem sagt komast fram og aftur með British Airways fyrir lægri upphæð en önnur leiðin kostar hjá Icelandair.
Svo er extra bónus við að kjósa Bretana. Sú staðreynd að þeir nota London City Airport fyrir flug til og frá Íslandi en sá er eins og nafnið gefur til kynna inni í borginni sjálfri og allar vegalengdir því styttri inn í miðborg.







