Fáir fjárfestar á Íslandinu góða virðast geta lagt saman tvo og tvo. Eða hvers vegna hríðfellur gengi Icelandair á hlutabréfamörkuðum þegar alls ónýtur gaur hættir sem forstjóri?

Fyrrum forstjóri Icelandair. Farið hefur fé betra. Skjáskot RÚV
Þetta eru ekki flókin vísindi. Með dyggri hjálp Eyjafjallajökuls á sínum tíma, hvers eldgos komst í ALLA fjölmiðla undir sólinni og glæsilegum eldtungum í Holuhrauni skömmu síðar, sem einnig komust í flesta fjölmiðla heims, hefur ferðamannastraumur til landsins verið næsta óstöðvandi.
Frá árinu 2000 til ársins 2010 slefuðu hingað um og yfir 400 þúsund ferðamenn á ársgrundvelli. Rúmlega einn ferðamaður per hvern íbúa í landinu svona give og take. Ekkert að því. Það er fjöldi sem allir sættu sig við og enginn böggaðist. Enginn kvartaði yfir rútufjölda á Skólavörðustíg. Enginn kvartaði yfir sjö þúsund lundabúðum á Laugavegi. Enginn kvartaði yfir að komast ekki á betri veitingahús landsins því þar væri fullbókað mánuði fram í tímann. Enginn kvartaði yfir kúk og viðbjóð í náttúrulaugum landsins. Enginn bölvaði Kínverjum í sand og ösku fyrir að stoppa sísona á Þjóðvegi númer eitt til að klappa hestum. Björgunarsveitir þurftu ekki vaktmenn í Reynisfjöru til að vara fávísa við sundsprett og enn var hægt að skella sér í Bláa lónið án þess að sækja um lán í bankanum.
Engin spurning er um að tilkoma Wow Air síðla árs 2012 hjálpaði mikið upp á sakir. Þó stöku erlend lággjaldaflugfélög byðu þá þegar upp á ódýr fargjöld á klakann þá voru það stopular ferðir og aðallega yfir sumartímann. Wow Air breytti því og gerði Íslandið góða að príma ódýrum áfangastað allt árið um kring. Á aðeins tveimur árum varð Ísland súperdúper heitur áfangastaður. Justin Bieber, Gordon Ramsey og Beyoncé aðeins þrjú nöfn af fjölmörgum helstu stjörnum heims sem sóttu landið heim á þessu tímabili og létu tugmilljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum vita af því.
Þennan tíma var Icelandair, undir stjórn Björgólfs Jóhannssonar, nett í sumarfríi. Flugfélagið með gamlar, þreyttar rellur og gamalt þreytt leiðakerfi og fargjöldin að mestu ennþá miðuð við einokunarstöðu flugfélagsins. Algjör tilviljun að öll yfirstjórn flugfélagsins á þessum tíma að nálgast eftirlaunaaldurinn (ekki.)
Árin 2012 til 2014 gerðist ekki ýkja margt hjá Icelandair undir stjórn herra Jóhannssonar. Víst fjölgaði viðskiptavinum en hreint ekki vegna þess að Icelandair var heitt stöff eða var að bjóða fargjöld par exellens. Það kom til af vinsældum Íslands á samfélagsmiðlum. Hlutabréf flugfélagsins hækkuðu eðlilega duglega á þessum tíma. Flugfélag sem allt í einu þarf ekki að hafa neitt fyrir að troða viðskiptavinum í vélar sínar án þess að lyfta litlafingri. Hlutabréf í slíku batteríi er absolút kaup meðal fjárfesta. Money for nothing kallast það á hinu engilsaxneska.
Alas, en svo kom að því að setja einhver markmið. Auka sölu og gera betur en helsti samkeppnisaðilinn Wow Air sem var að vaxa hraðar en ljósið ferðast.
Hmm. Eigum við að byrja að bjóða Íslendingum ferðir til vinsælustu staða Íslendinga? Neibbs, sagði herra Jóhannsson. Íslendingar mega eiga sig. Við ætlum að gera vel við alla aðra.
Í framhaldinu hóf Icelandair flug til staða á borð við Chicago, Madríd, Mílanó, Dublin, Tampa, San Francisco, Toronto og Montreal svo fáir áfangastaðir séu nefndir. Wow Air langt á undan til þeirra margra svo herra Jóhannsson var ekki að bjóða mikið upp á neitt nýtt heldur bara njóta meðvinds á vinsælum áfangastöðum Wow Air.
Öllum að óvörum (ekki) fóru hlutabréf í flugfélaginu heldur að lækka flugið við þetta múv Icelandair. Var virkilega ekkert betra í stöðunni en copy-paste á Wow Air en þó með hefðbundnum rándýrum fargjöldum?
Í kjölfarið hugsaði herra Jóhannsson að best væri að extra áherslu á Bandaríkjamarkað. Upp úr hatti sínum dró karlinn hreint magnaða áfangastaði á borð við Dallas, Kansas, Portland, Cleveland og Baltimore kom sterkt inn aftur eftir langt hlé.
Víst var hægt að finna ástæður fyrir að þessar borgir gætu heillað Evrópubúa ekki síður en það gæti heillað íbúa borganna að setja undir sig betri fótinn til Evrópu. Og vissulega er ekki fráleitt að ætla að íbúar í krummaskuðum Bandaríkjanna hafi áhuga að öðlast smá þekkingu með túrum til „framandi” evrópskra borga. En það þarf líka að fylla rellurnar á leiðinni frá Evrópu gegnum Keflavík og til krummaskuða og hvaða upplýsti Evrópubúi er að fara að eyða fríinu í Cleveland eða Portland???

Fjöldi erlendra ferðamanna sem yfirgefur landið frá 2006. Skjáskot
Enginn! Segjum og skrifum. Sérstaklega ekki þegar flug á þessa staði kostar svipað eða meira en túr til Orlandó, New York og Boston. Það eru jú ágætar ástæður fyrir að Cleveland er ekki mekka ferðamennsku á heimsvísu. Sömu ástæður og Þórshöfn á Langanesi er ekki að trekkja mikinn fjölda fólks.
Þá gleymdist líka að almenningur almennt í Portland og Cleveland og slíkur stjörnuborgum eiga hvorki milljónir á bók til að eyða í Evrópufrí né heldur fá ýkja marga sumarleyfisdaga jafnvel þó áhuginn sé fyrir hendi. Eða hvers vegna er American Airlines, United eða Delta ekki að bjóða beinar ferðir frá þessum borgum ef massívur áhugi er fyrir hendi á flugi til og frá Evrópu?

Og hlutabréfagengi Icelandair á sama tímabili. Einhver líkindi?
Beisik, gott fólk. Tveir plús tveir…
Herra Jóhannsson er líka ábyrgur fyrir tilraun Air Iceland Connect, áður Flugfélag Íslands, til að hasla sér völl í millilandaflugi. Aberdeen, Belfast, Stafangur og yakketíyakketi. Við komumst sem sagt til Skotlands, Írlands og Noregs með hægfara Fokker/Bombardier hreyflavélum en fyrir hærra verð en við greiddum til Edinborgar, Dublin og Osló með alvöru þotum á miklu skemmri tíma. Brilljant múv sem auðvitað var dautt í fæðingu. Engin útlönd lengur á dagskrá Air Iceland Connect.
Herra Jóhannsson, sami gaur og hvatti til að ríkið einkavæddi allt nema skóla og kirkjur sem forsvarsmaður Samtaka atvinnulífsins, vílaði ekki fyrir sér að kalla til ríkið til að setja stopp á verkföll hans eigin starfsfólks. Þá allt í einu var ríkið ómissandi til að reka flugfélagið hans.
Herra Jóhannsson tók við sem stjóri Icelandair í maí árið 2008. Þá kostaði hver hlutur í flugfélaginu á markaði 21.8 krónur. Rúmum tíu árum síðar, eftir langstærsta ferðamannatímabil Íslandssögunnar standa bréf Icelandair í 7.97 krónum. Undir stjórn Björgólfs Jóhannssonar hefur hlutabréfagengi Icelandair hrapað um 63 prósent.
Vitiborið fólk hefði kannski haldið að afsögn herra Jóhannssonar yrði til þess að bréf Icelandair hækkuðu heil ósköp. En sennilega eru íslenskir fjárfestar ekkert vaðandi í gáfum frekar en yfirmenn Icelandair…







