Ekki einn íslenskur áfangastaður né íslenskt fyrirtæki kemst á topp 15 lista hins vinsæla bandaríska ferðatímarits Travel+Leisure yfir bestu hina-og-þessa áfangastaðina árið 2018. Og kemur hugsandi fólki varla á óvart.

Tímaritið vinsæla, sem er langvinsælasta ferðatímarit Bandaríkjanna og er lesið af sex milljón manns mánaðarlega, birtir árlega lista sína yfir besta hitt og besta þetta á ferðalögum. Ólíkt flestum öðrum listum þá byggir listi Travel+Leisure eingöngu á umsögnum ferðalanga sjálfra.

Skemmst frá að segja, en kemur engum hugsandi manni á óvart, að einhver allra fallegasti staður á jarðríki, Ísland, kemst hvergi á lista þrátt fyrir að milljónir sæki hingað árlega þessi dægrin. Neibbs. Ísland, íslensk flugfélög eða íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sjást hvergi. Eitthvað sem hlýtur að kalla á spark í rass starfsfólks Íslandsstofu sem hefur mistekist að koma einhverju fallegasta landi heims á kortið vestanhafs.

Það kemur vitibornu fólki sem til þekkir reyndar lítt á óvart. Græðgi og léleg þjónusta er ekki til þess fallið að fá súpergóðar einkunnir og nægir að skoða umsagnir um Wow Air til að vitna slíkt jafnvel þó landið sjálft sé fallegra en tárum taki.

Alas, en hver er svo fallegasta eyja Evrópu að mati lesenda Travel+Leisure þetta árið? Jú, það er smáeyjan Parós í Grikklandi (sjá mynd hér til hliðar.)

Í kjölfarið fylgja stórkostlegir staðir á borð við Azoreyjur, Orkneyjur í Skotlandi, Galapagos-eyjur og Java, Balí og Lombok á Indónesíu. Ekkert Ísland á topp fimmtán.

En hvað með mest spennandi borgir Evrópu? Ekkert íslenskt þar heldur en þar trónir Flórens hin ítalska á toppnum þrátt fyrir að sú sé mökkfull af ferðafólki 24/7 alla daga ársins.

En hvað með fimmtán bestu borgir heims? Kemst Reykjavíkin, sem hefur sent íbúa sína út í hafsauga til að rýma fyrir ferðafólki og gefið leyfi fyrir fleiri túristabúllum í miðbænum en fjöldi vændiskvenna í Las Vegas, að á þeim lista? Neibbs! Engin Reykjavík en á toppnum finnst að mestu óþekkt borg í Mexíkó: San Miguel de Allende.

Hvað með íslensku flugfélögin eða Leifsstöð? Er eitthvað til að vera stolt af þar samkvæmt listum Travel+Leisure? Neibbs. Engin Leifsstöð og ekki eiga Icelandair né Wow Air erindi sem erfiði.

Dapurt prógramm ekki satt. Rólexinn í náttúrufegurð kemst ekki að á neinum lista sökum græðgi og lélegrar þjónustu ferðaþjónustuaðila. Eða hvað annað veldur því að fagra Ísland kemst ekki einu sinni á lista hjá yfirborðskenndum bandarískum ferðamönnum?

Nánar hér um lista Travel+Leisure.