Þó efalítið séu íslenskir ferðamenn þarna úti sem elska fátt meira en dirfsku og djörfung á ferðum sínum þá er alltaf betra að vera varkár en dauður.

Alvopnaðir hermenn hafa vaktað strendur Cancún síðustu þrjá mánuðina. Það segir sitt…
Dauður er nefninlega það sem næsti ferðamaður gæti verið á hinum sívinsæla stað Cancún í Mexíkó.
Óljóst hvort útskriftarnemar í mennta- eða háskólum Íslands flykkjast enn til Cancún í Mexíkó til að fagna því að súrri setu á skólabekk er lokið í bili. Um áraraðir fóru heilu hópar skólafólks í frí til Cancún í Mexíkó og aðeins sex mánuðir síðan við hér vorum beðin um að gera tilboð í eina slíka ferð fyrir 46 nemendur.
Okkur datt það ekki í hug þá og dettur það enn síður í hug nú þegar morðum og limlestingum fjölgar viku frá viku. Illvíg glæpagengi Mexíkó hafa nefninlega náð til helstu ferðamannastaða landsins og valda þar usla.
Usla á borð við átta lík sem fundust á víð og dreif um borgina Cancún í liðinni viku. Sum þeirra sundurskorin og bæði höfuð- og fingurlaus til að erfiðara væri að bera kennsl á líkin. Sem sagt lík af því taginu sem eyðileggur dúndrandi frí fyrir flestu fólki sem kemur frá norðurhluta Evrópu ef einhver labbar fram á eitt stykki á næstu götu.
Engar fréttir að stjórnvöld ráði ekkert við glæpagengin í landinu. Nýjar fréttir að sömu glæpagengi gangi nú berserksgang á helstu ferðamannastöðum.
Sennilega best að halda sig fjarri svona næstu árin að minnsta kosti…







