Nú þegar líða fer að beinu flugi héðan til Indlands kunna ýmsir að kætast. Indland er þannig land að þú annaðhvort elskar eða hatar og þeir sem elska geta ekki beðið eftir að komast þangað aftur.

Indland og Ísland eru eins svart og hvítt og framast er unnt að verða.
Fengum fyrirspurn um hvort Íslendingar þyrftu vegabréfaáritun til Indlands og svarið við því er já. Allir erlendir ríkisborgarar sem heimsækja landið þurfa áritun.
En þar með er ekki sagt að það sé sama vesenið og vilja fá áritun til Víetnam eða Kongó. Þvert á móti hafa Indverjarnir gert prógrammið æði vel og við svo heppin að falla undir þau lönd sem geta fengið svokallað e-vísa og slíkt ferli tekur sjaldan lengur en þrjá til fjóra daga ef fólk er með öll gögn klár.
Fara þarf á þessa vefsíðu indverskra stjórnvalda, fylla út umsókn um e-vísa, greiða tiltekið gjald, framvísa skýrum ljósritum af annars vegar lífkennasíðu vegabréfs og ljósmynd í vegabréfi og senda af stað. Ef allt er með felldu færðu sent e-vísa til baka nokkrum dögum síðar.
Engar tímatakmarkanir eru á e-vísa svo þú getur dvalið eins lengi og þú vilt í landinu. Vegabréfið þarf auðvitað líka að vera í gildi og það minnst sex mánuði fram í tímann og þess utan þurfa að vera tvær tómar síður í vegabréfinu. Indverjar stimplaglaðir með afbrigðum sjáðu til.
Svo er bara að húrra sér af stað og njóta 🙂







